Back to search

Agricultural University of Iceland

Áhrif skjóls á trjávöxt og nærviðri

Abstract

dc:description.abstract

Vindur getur haft mikil áhrif vöxt og þroska trjáa og annars gróðurs, bæði með beinu áreiti á plöntuvefi og í gegn um þau áhrif sem hann hefur á aðra nærviðrisþætti, eins og lofthita, jarðvegshita, yfirborðshita plantna, rakastig, o.fl. Lítið hefur verið birt hérlendis af niðurstöðum mælinga á samverkandi áhrifum vinds og hita og plöntuvaxtar. Rannsóknaverkefni um þessa þætti var sett upp í Fljótshlíð, Rangárvallasýslu, sumarið 2016. Markmið verkefnisins var að skoða samspil vindhraða og hitastigs og plöntuvaxtar, með því að mæla vindhraða, hitastig í 10 og 200 cm hæð og í jarðvegi yfir eitt vaxtartímabil, sem og vöxt ungra birkiplantna sem gróðursettar voru í staðlaðan jarðveg á þremur mismikið skýldum meðferðastöðum innan afmarkaðs svæðis með sama veðurfari. Svæði 1 var á óskýldum berangri (viðmið), Svæði 2 var með skjólbeltum á tvær hliðar (norður og vestur en opið til austurs- og suðurs), og Svæði 3 var í mjög miklu skjóli innan þétts skjólbeltakerfis. Til að meta bein áhrif vindslits fór einnig fram samanburður á mælingu slitflagga á sömu stöðum en yfir lengra tímabil. Skjólmeðferðirnar drógu martækt úr meðal- og hámarksvindhraða (t-próf: p<0,001) á skýldum stöðum miðað við berangur. Meðaltöl hitastigs yfir rannsóknatímabilið voru einnig marktækt hærri á skýldu svæðunum en á óskýldu svæði (t-próf: p<0,01). Dagshiti í 200 cm hæð var 0,6 °C hærri í miklu skjóli en á berangi, en 1,6 °C hærri í 10 cm hæð frá yfirborði, og 1,1 °C hærri á 10 cm dýpi í jarðvegi. Laufflatarmál (LA) birkisins að hausti var orðið marktækt meira (t-próf: p<0,001) á báðum skýldu svæðunum miðað við óskýlda svæðið, eða 1,8 sinnum meira (81,7%) á svæði Svæði 2 og 2,2 sinnum meira (123,4%) á svæði Svæði 3 miðað við Svæði 1. Mæling á lífmassa birkiplantna á meðferðasvæðunum þremur sýndi jafnframt að skjólið hafði aukið vöxtinn marktækt (t-próf, p<0,001) á báðum skýldu svæðunum miðað við Svæði 1. Lífmassi í sumarlok vað að jafnaði 71,8% meiri á svæði Svæði 2 og 78,5% meiri á svæði Svæði 3 miðað við svæði Svæði 1. Einnig var hlutfallslega meira af heildarlífmassa trjánna varið til rótarvaxtar á skjóllausu á berangri en á skýldum svæðum sem gerði muninn í ofanjarðarvexti birkisins enn meiri en þegar heildarlífmassi var borinn saman.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hallur S Björgvinsson 1961-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36043
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36043

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hallur S Björgvinsson 1961-. Áhrif skjóls á trjávöxt og nærviðri. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36043