Back to search

Agricultural University of Iceland

Viðarmagnsspá fyrir Vesturland

Abstract

dc:description.abstract

Hagsmunaaðilar í skógrækt á Vesturlandi hafa mikla trú og áhuga á framtíð skógar-auðlindarinnar. Því er þetta verkefni tilkomið með það að markmiði svara spurningum um stöðu skóga og spá fyrir um framtíða vöxt þeirra á Vesturlandi. Allt starfssvæði Vesturlandsskóga var tekið fyrir í þessu verkefni, eins og það var fram til ársins 2016, frá Gilsfjarðarbotni í norðri og Strandaheiði í suðri. Gögn frá íslensku landsskógarúttektinni (ÍSÚ) ásamt reiknilíkaninu Ice-Forest voru notuð til að greina og spá fyrir um stöðu skóga landshlutans til næstu 30 ára. Í þessu verkefni var leitast við að svara eftirfarandi spurningum: i) Hvað er stórt hlutfall af öllum ræktuðum skógum landshlutans nýtanlegt til timburvinnslu í dag? ii) Hvar eru þeir staðsettir? Hvernig dreifist eignarhald þeirra? Og að lokum, iv) spá fyrir um vöxt þessara nýtanlegu skóga með líkaninu IceForest. Tvær sviðsmyndir voru settar fram í líkaninu til að meta hvernig skógarnir þróuðust með tilliti til standandi rúmmáls og kolefnisforða, eftir því hvort þeir væru nytjaðir á tímabilinu (sviðsmynd 2; S2) eða ekki (sviðsmynd 1; S1). Nettóflatarmál nýtanlegra ræktaðra skóga á Vesturlandi var metið 2.870 ha (± 630), en það var einungis 47% af öllum ræktuðum skógum á Vesturlandi sem þekja 7.000 (± 640) ha árið 2017. Meirihluti þessara nýtanlegra skóga var staðsettur í kringum höfuðborgarsvæðið og á sunnanverðu Vesturlandi til og með Skorradal. Um þriðjungur af nýtanlegum skógum var í eigu ríkisins, annar þriðjungur í einkaeigu og síðasti þriðjungurinn í eigu félaga og skógræktarsamtaka. Um 77% ónýtanlegra skóga á Vesturlandi fékk það mat vegna tveggja flokka: „stofnar of kræklóttir“ eða „vöxtur of lítill“. Sviðsmyndir S1 og S2 gerðu báðar ráð fyrir standandi rúmmáli í nýtanlegum skógum uppá um 110.000 m3 (± 50.000) árið 2019, við upphaf spárinnar. Standandi rúmmál jókst í um 680.000 m3 (±200.000) við lok spár árið 2049 í S1 sem var án nýtingar. Standandi rúmmál jókst minna, eða í um 410.000 m3 (±130.000) við lok spár árið 2049 í S2, þar sem grisjanir, lokahögg og önnur umhirða verður framkvæmd á réttum tíma miðað við að hámarka timburnytjar. Líkanið IceForest áætlaði í S2 að nýtanleg viðaruppskera úr skógunum yfir spátímabilið gæti verið um 190.000 m3 (± 90.000). Þetta er það viðarmagn sem hægt er að gera ráð fyrir að aðilar sem nýta skóga Vesturlands geti nýtt með sjálfbærum hætti næstu 30 árin. Í S1 jókst áætlað magn bundins kolefnis (C) í nýtanlegum skógum úr um 40.000 tonn C árið 2019 í um 280.000 tonn C árið 2049. Í S2 var aukning bundins kolefnis í lífmassa áætlað um 40.000 tonn C árið 2019 í um 160.000 tonn C árið 2049. Þó að magn C sem verður bundið í S2 sé minna en í S1, er samt gert ráð fyrir mikilli aukningu í þeirri sviðsmynd til ársins 2049 þrátt fyrir hámarks sjálfbæra nýtingu skóganna á sama tíma. Ef þeir 190.000 m3 af timbri sem áætlað er að falli til yfir næstu 30 árin í nýtanlegu skógum Vesturlands væru seldir í dag mætti gróflega áætla að brúttótekjur yrðu 3,8 milljarðar kr. m/vsk. Yfir 30 ára tímabil væru það meðalárstekjur uppá 128 milljónir kr. m/vsk. Það eru þó brúttótekjur miðað við verð og gengi ársins 2019, án tillits til upphafskostnað skógræktar og núvirði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ellert Arnar Marísson 1991-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35062
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35062

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ellert Arnar Marísson 1991-. Viðarmagnsspá fyrir Vesturland. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35062