Back to search

Agricultural University of Iceland

Hraunréttir í Borgarbyggð - vettvangur upplifunar -

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur með þessu verkefni var að skoða og leita svara við spurningunni: Hvað er hægt að gera við fjárréttir, sem eru friðaðar og eru ekki í notkun, til að skapa vettvang fyrir upplifun? Hraunréttir í Borgarbyggð urðu að viðfangsefni þessarar ritgerðar. Með gagnaöflun, viðtölum og hugmyndavinnu var lögð fram tillaga að nýtingu hraunrétta í tengslum við upplifun og afþreyingu. Tækifæri felst í því að vinna með hraunréttir sem sérstaka segla í ferðaleið hestamanna sem tengir þær saman. Hvaða tilgang hafa fjárréttir gerðar úr hraungrýti sem eru ekki í notkun? Hvernig getum við lært að meta og varðveita fjárréttirnar sem eru merkilegar í sögu okkar Íslendinga, þannig að gildi þeirra verði sem mest? Sérstaða réttanna sem eru í notkun hafa mikið menningarlegt gildi. Þ að segir sig sjálft að réttir sem eru yfirgefnar og hætt er að nota hafa minna menningarlegt gildi. Með fræðslu og notkun réttanna skapast meiri virðing fyrir menningararfinum sem hraunréttir eru, sem leiðir svo aftur til verndunar og betri umgengni. „Túlkun leiðir til skilnings, skilningur leiðir til virðingar og virðing til verndunar“ (Tilden,1977, bls. 38).

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrafnhildur Soffía Hrafnsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33480
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33480

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrafnhildur Soffía Hrafnsdóttir 1981-. Hraunréttir í Borgarbyggð - vettvangur upplifunar -. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33480