Back to search

Agricultural University of Iceland

Bústjórn við nýtingu á blóði fylfullra hryssna til lyfjaframleiðslu

Abstract

dc:description.abstract

Áratuga reynsla er á hrossahaldi til blóðtöku úr fylfullum hryssum hér á landi. Alls hafa 92 starfsstöðvar tilkynnt um slíka starfsemi til Matvælastofnunar en eitt fyrirtæki, Ísteka ehf, hefur leyfi stofnunarinnar til að taka blóð úr fylfullum hryssum til vinnslu afurða. Markmið verkefnis var að draga saman þekkingu um bakgrunn hrossahalds til blóðtöku á fylfullum hryssum og þá reynslu sem byggst hefur upp hér á landi. Ennfremur að lýsa hrossahaldinu og kanna hvernig þættir í bústjórn geti haft áhrif á afurðirnar, sem eru mældar í blóðeiningum sem hver hryssa skilar á ársgrundvelli, auk kjötframleiðslu. Gengið var út frá því að fanghlutfallið, fangtíminn, styrkur og varanleiki PMSG í blóði hryssnanna hefði mest áhrif. Könnun sem byggði á spurningalista var send til blóðtökubænda en svarhlutfall var afar lélegt sem skýrist mögulega af því að lítil opinber umræða er um búgreinina og þá helst á gagnrýnum nótum. Könnunin gaf því takmarkaða innsýn í búskap með hrossahald til blóðtöku úr fylfullum hryssum. Tímabært er að búgreinin fái meiri athygli fræðasamfélagsins þannig að hægt verði að greina frekar hvernig best verði staðið að þessari framleiðslu bæði út frá sjálfbærni beitarauðlindarinnar, hagrænu sjónarmiði og dýravelferð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Dagrún Kristinsdóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33477
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33477

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Dagrún Kristinsdóttir 1995-. Bústjórn við nýtingu á blóði fylfullra hryssna til lyfjaframleiðslu. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33477