Back to search

Agricultural University of Iceland

Borgin frá sjónarhorni barna. Áhrif þéttingar byggðar á leikskólalóðir, umhverfi leikskóla og deiliskipulagsáætlanir

Abstract

dc:description.abstract

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er mikilvægur samningur um réttindi barna og samofinn starfsumhverfi leikskóla á Íslandi. Löggjöfin, reglugerðir og aðalnámsskrá leikskóla setur jafnframt ramma fyrir námsumhverfi leikskóla á Íslandi. En standa sveitarfélögin vörð um þau réttindi með þéttingu byggðar? Markmið þessarar ritgerðar er að skoða hvort ástæður fyrir uppreisn fagfólks gegn neikvæðri þróun á aðstæðum leikskóla barna í Svíþjóð geti endurtekið sig í Reykjavík. Er skipulagið unnið með tillit til þarfa barnsins? Er rými fyrir börn sé að verða of lítið. Er útisvæðum barna við leikskóla fórnað þegar byggð er þétt? Greiningar á umfjöllun í íslenskum skipulagsáætlunum um þarfir og réttindi barna eru sláandi, en aðeins örlar á nýjum áherslum við gerð hverfisskipulags í Reykjavík. Fyrir 40 árum voru ákvæði um ekki minna en 20 m² útisvæði á hvert barn. Með setningu nýrrar löggjafar árið 2008, endurskoðun reglugerðar um starfsumhverfi leikskóla árið 2009 og nýrri aðalnámsskrá leikskóla árið 2011 var fallið frá stærðarákvæðum í eldri reglugerðum. Í nýjustu reglugerð eru engin stærðar viðmið lengur. Sænsk viðmið um útileiksvæði skilgreina 40 m² á hvert barn og að virka leiksvæðið sé aldrei minna en 3.000 m². Rannsóknir undirstrika þó að stærðir útisvæðanna eru ekki lykilatriðið, og hugtakið virknikostir (e. affordance) er mælikvarði sem er notaður til að skilgreina eiginleika umhverfis og landslagsgerð á leikskólalóðinni og nágrenni leikskóla sem bjóða börnunum upp á fjölbreyttar aðstæður til leikja, áskoranir og örvandi leikumhverfi. Nýjasta vinnuaðferðin í Svíþjóð og hugmyndafræðin „borgin í augnhæð“ í Stokkhólmi er að greina áhrif skipulagsáætlana á umhverfi barna með þverfaglegum áherslum út frá þörfum og réttindum barna. Niðurstöður þessa verkefnis sýna að við þurfum að gera betur til að standa vörð um réttindi barna þegar kemur leikumhverfi leikskólabarna og nágrenni leikskóla. Til þess þarf hugarfarsbreytingu og endurskoða þarf þá löggjöf, reglugerðir og aðra umgjörð sem styður við starfsumhverfi leikskólabarna á Íslandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hermann Georg Gunnlaugsson 1966-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33469
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33469

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hermann Georg Gunnlaugsson 1966-. Borgin frá sjónarhorni barna. Áhrif þéttingar byggðar á leikskólalóðir, umhverfi leikskóla og deiliskipulagsáætlanir. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33469