Back to search

Agricultural University of Iceland

Krýsuvík - á móti sólu Mat á svæðinu og tillaga að uppbyggingu ferðamannastaða

Abstract

dc:description.abstract

Á síðustu árum hafa orðið gífurlegar breytingar á fjölda ferðamanna á Íslandi en ferðamenn hafa farið úr 70 þúsund í 2,2 milljónir 2017 á aðeins 30 árum. Spár gera enn ráð fyrir aukningu ferðamanna næstu ár en ekki eins mikilli og verið hefur. Krýsuvík hefur ekki farið varhluta af auknum ferðamannastraumi en umferð bíla við Seltún í Krýsuvík hefur tvöfaldast á 5 árum. Mikilvægt er fyrir sveitarfélagið Hafnarfjörð að gera sér betur grein fyrir þeim tækifærum sem liggja í Krýsuvík með það að sjónarmiði að fara í uppbyggingu á völdum stöðum og hlúa að svæðinu. Marka þarf stefnu uppbyggingar, hvaða svæði á að byggja upp þannig að þau taki við fjölgun ferðamanna og hvaða svæði á að leggja minni áherslu á og jafnvel vernda. Skoðun og greining leiddi í ljós að aðal ferðamannastraumurinn í Krýsuvík liggur að háhitasvæðinu í Seltúni. Frekari greining á svæðinu öllu var unnin út frá fyrirliggjandi talningum, spurningakönnunum og viðtölum við hagsmunaaðila. Jafnframt var svæðið skoðað með svo kallaðri SVÓT aðferð, þar sem svæðið var skoðað með tilliti til styrkleika, veikleika, tækifæra og ógnana. Niðurstöður greiningarinnar eru að óspillt náttúra, jarðfræðin, fámennið, menningarminjar og háhitasvæðin er það sem ferðamenn sækjast eftir í Krýsuvík og fjölbreytileiki svæðisins þykir einstakur. Með hliðsjón af niðurstöðunum er lagt til að ráðist verði í frekari uppbyggingu við Seltún, Grænavatn, Kleifarvatn, Krýsuvíkurberg og Krýsuvíkurhverfið vegna náttúrunnar og aðgengis. Settar eru fram tillögur að skiplagi við Krýsuvíkurberg og Grænavatn en endanlegt deiliskipulag þarf að vinna í samvinnu við hagsmunaaðila.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Stefánsdóttir 1967-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31998
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31998

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Stefánsdóttir 1967-. Krýsuvík - á móti sólu Mat á svæðinu og tillaga að uppbyggingu ferðamannastaða. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31998