Back to search

Agricultural University of Iceland

Burðarerfiðleikar sauðfjár

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að meta tíðni og eðli burðarerfiðleika hjá íslenskum ám með því að taka saman öll tiltæk gögn um burðarerfiðleika. Unnið var úr gögnum sem til voru um burðarvandamál hér á landi en skráning var gerð á tilraunabúinu á Hesti árin 2010-2014 og þá hefur einnig verið gerð hliðstæð skráning í Fjárvís síðustu árin en notast var við gögn frá árunum 2015-2016. Niðurstöðurnar gáfu til kynna að burðarvandamál megi m.a. rekja til náins samspils fæðingarþunga við kyn lamba, fjölda lamba í burði og aldur móður en einnig kom í ljós að tengsl eru á milli burðarvandamála við röð lamba í burði og burðardag innan árs. Hrútlömb þurftu oftar á burðarhjálp að halda heldur en gimbralömb sem má m.a. rekja til hornastærðar þeirra en hrútlömbin reyndust einnig vera þyngri heldur en gimbralömbin. Einlembingar þurftu oftast á burðarhjálp að halda, þar á eftir komu þrí- og fjórlembingar en sjaldnast þurfti að hjálpa tvílembingum. Einlembingar reyndust vera þyngri heldur en fleirlembingar en almennt voru lömb sem þurftu á burðarhjálp að halda þyngri heldur en lömb sem þurftu ekki á burðarhjálp að halda. Veturgamlar ær og ær sem voru sex vetra og eldri þurftu oftar á burðarhjálp að halda heldur en ær á aldrinum tveggja til fimm vetra. Þá var algengast að hjálpa þyrfti fyrsta lambinu hjá ám sem áttu fleiri en eitt lamb, því næst öðru lambinu en sjaldnast þurfti að hjálpa þriðja/fjórða lambinu. Burðarhjálp var minnst fyrstu daga sauðburðar eða dagana 19.-25.apríl og síðustu daga sauðburðar en mest var burðarhjálp dagana 3.-9.maí. Yfirlit yfir tíðni skráninga á burðarhjálp í skýrsluhaldi Fjárvís gáfu til kynna að yfir heildina litið væri ekki nógu mikið skráð. Að vissu leyti má því segja að skráningar á burðarvandamálum í skýrsluhaldi Fjárvís hafi ekki náð tilgangi sínum en til þess að hægt sé að fá heildstæða yfirsýn yfir tíðni og eðli burðarerfiðleika hér á landi er því líklegt að efla þurfi skráningar á burðarerfiðleikum. Niðurstöðurnar gefa til kynna að með því að skrá tíðni og eðli burðarerfiðleika hjá íslenskum ám sé hægt að afla þekkingar sem megi nýta til þess að hafa áhrif á hagkvæmni framleiðslu sauðfjárbúa og er því full ástæða til þess að skoða það að efla skráningu á burðarerfiðleikum með það að markmiði að taka tillit þeirra í ræktunarstarfinu svo hægt sé að fylgja eftir ræktunarmarkmiðum fyrir íslenska sauðfjárrækt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pálína Pálsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/30675
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/30675

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pálína Pálsdóttir 1992-. Burðarerfiðleikar sauðfjár. 2018. http://hdl.handle.net/1946/30675