Agricultural University of Iceland
Áhrif kjarnfóðurs í stað mjólkur á vöxt og þroska smákálfa
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessa verkefnis var að skoða áhrif kjarnfóðurs í stað mjólkur á vöxt og þroska smákálfa. Í verkefninu voru 32 kálfar sem skipt var upp í 8 meðferðahópa og voru 4 kálfar í hverjum hóp. Þrjár tímalengdir mjólkurskeiðs voru prófaðar og tveir mismunandi mjólkurduftsstyrkir (155g/L, 200g/L). Tímalengdir duftmjólkurhópanna voru 54, 38 og 25 dagar eða 2, 1,5 og 1 mánuður á frjálsum aðgangi mjólkur auk 3 daga broddgjafar. Til viðmiðunar voru tveir hópar sem fengu ferskmjólk í 52 daga ásamt sömu broddmeðferð og dufthóparnir. Frjáls aðgangur var að kjarnfóðri, heyi og vatni allan tilraunatímann sem voru 4 mánuðir (120 dagar). Allir hópar höfðu frjálsan aðgang að sinni mjólkurgerð í mismunandi tíma eftir því hvaða meðferðarhópi þeir lentu í en fráfærutíminn var jafn langur hjá öllum hópum eða 2x2 L mjólk á dag í 10 daga. Megin niðurstöður tilraunarinnar eru skýrar: - Hægt er að stytta mjólkurskeið kálfa niður í 1,5 mánuð. Þeir skila sambærilegum vexti og 2 mánaða kálfar. - Ekki skiptir máli upp á vöxt og vaxtarhraða hvort gefin er duftmjólk með 155 eða 200 g/L ef frjáls aðgangur er að mjólkinni. - Kálfar á 200g/L mjólkinni átu marktækt minna kjarnfóður en 155g/L kálfarnir. - Duftmjólkurkálfarnir stóðu sig allir betur en ferskmjólkurkálfarnir svo spyrja má sig um ágæti þess að gefa kálfum ómeðhöndlaða ferskmjólk af misjöfnum gæðum. - Ferskmjólkur kálfarnir skiluðu dýrasta eldinu. Þessar niðurstöður eru byggðar á þeim forsendum að kálfarnir hafi frjálsan aðgang að mjólk allan mjólkurskeiðstímann og kjarnfóðri, heyi og vatni frá fæðingu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Haukur Marteinsson 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/30672
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/30672