Back to search

Agricultural University of Iceland

Beitarskógar Evrópu og nýting skógarauðlindarinnar á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Ljóst er að tap á líffræðilegum fjölbreytileika er ein mesta umhverfisógnin sem steðjar að mannkyninu. Samfara aukinni umhverfisvitund hefur áhugi manna á sjálfbærum landnýtingarháttum aukist og eru beitarskógar ein þeirra sjálfbæru landnýtingaraðferða sem horft er til. Beitarskógar voru algeng landnýtingaraðferð í Evrópu áður fyrr en dregið hefur úr notkun hennar samfara breyttum landnýtingarháttum. Beitarskógar búa yfir miklum vistfræðilegum og menningarlegum verðmætum og teljast mikilvægir í náttúruvernd. Í þessari ritgerð er saga beitarskóga Evrópu rakin og teknar saman helstu rannskóknir sem til eru um stöðu og nýtingu evrópskra beitarskóga ásamt því að skoða hvort slíkar landnýtingaraðferðir hafi mögulega verið stundaðar hér á landi af landnámsmönnum og afkomendum þeirra. Einnig eru beitarrannsóknir í íslenskum skógum kynntar og lagt mat á hvort leggja ætti meiri áherslu á ræktun beitarskóga. Í lokaorðum kemur fram að þrátt fyrir að vísindmenn séu flestir sammála um vistfræðilegt og menningarlegt mikilvægi beitarskóga virðist skorta skýra pólitíska stefnumótun í flestum löndum Evrópu varðandi vernd þeirra og viðhald. Einnig eru margir sem benda á aukna þörf á rannsóknum sem ná yfir stærri svæði. Margt bendir til að landnámsmenn hafi reynt að stunda sjálfbærar landnýtingaraðferðir hér landi t.d. með beitarstjórnun og trjástýfingum og að skógareyðing hafi á sumum stöðum verið hæg og staðbundin. Hér á landi má merkja aukinn áhuga á samþættingu beitar og skógræktar. Ræktun og nýting beitarskóga er ákjósanleg leið til að Ísland nái þeim umhverfismarkmiðum sem við höfum sett okkur, m.a. í Parísarsamkomulaginu og samningnum um líffræðilega fjölbreytni, en til þess að svo geti orðið þarf aukinn kraft í rannsóknir og gott samstarf milli stjórnvalda og hlutaðeigandi samtaka.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Olga Dís Sævarsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29084
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29084

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Olga Dís Sævarsdóttir 1985-. Beitarskógar Evrópu og nýting skógarauðlindarinnar á Íslandi. 2017. http://hdl.handle.net/1946/29084