Back to search

Agricultural University of Iceland

Fiðrildaathugun á Hvanneyri árin 2010-2015 Áhrif veðurfars á tegundir, flugtíma og fjölda fiðrilda

Abstract

dc:description.abstract

Loftlagsbreytingar og aðrar breytingar á veðurfari hafa mikil áhrif á lífríkið. Fiðrildi eru talin góður vísir á breytingar í lífríkinu og er bæði ódýrt og einfalt að nota ljósgildru til að vakta breytingar á fjölda og flugtíma þeirra á hverjum stað. Fiðrildavöktun hófst hér á landi árið 1995 að frumkvæði Náttúrufræðistofnunar Íslands. Síðan bættust Náttúrustofur og áhugamenn víða um land smám saman í hópinn. Þessir aðilar hafa sameinað krafta sína og safnað miklu gagnasafni sem gerir það mögulegt að vakta áhrif loftlagsbreytinga á lífríkið. Landbúnaðarháskólinn hóf þátttöku í fiðrildavöktuninni árið 2010. Gögn fyrstu þriggja áranna, 2010-2012 voru greind til tegunda í lokaverkefni Ástu Kristínu Guðmundsdóttur vorið 2013. Í þessari ritgerð eru gögn áranna 2013-2015 tegundagreind en jafnframt er heildarsýnasafnið 2010-2015 skoðað. Teknar voru fyrir sex algengustu tegundirnar og skoðaðar sveiflur milli ára, einnig voru þær bornar saman við þrjá veðurfarsþætti, hitastig, vind og úrkomu. Skoðað var hvaða áhrif breytingar á þessum þáttum hefðu á flugtíma og fjölda fiðrildanna. Tegundirnar þola mismiklar breytingar í veðurfari á mismunandi þroskastigum og á mismunandi tímum árs en sumar þola vel breytingar nema þegar veðrið versnar talsvert. Aðrar tegundir þoldu litlar breytingar ílla. Hitastig og úrkoma virðast vera meiri áhrifaþættir en vindur, einnig er kjörhitastig misjafnt milli tegunda og þola þær mismikið úrkomu, þar sem mikil aukning var í fjölda fiðrilda þá vikuna þrátt fyrir talsverða úrkomu, en

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29082
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29082

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir 1986-. Fiðrildaathugun á Hvanneyri árin 2010-2015 Áhrif veðurfars á tegundir, flugtíma og fjölda fiðrilda. 2017. http://hdl.handle.net/1946/29082