Agricultural University of Iceland
Áhrif mismunandi jarðvinnslu á vöxt og þroska byggs
Abstract
dc:description.abstractHefðbundin jarðvinnsla við kornsáningu er plæging auk sáðbeðsvinnu. Á norðlægum slóðum hafa bændur stundum plægt eða herfað akra á haustin til að flýta fyrir jarðvinnslu og sáningu á vorin. Víða í heiminum er vaxandi áhugi á að skipta út plægingu fyrir minni jarðvinnslu eða ísáningu, þ.e. sá beint í óunnin svörð til að spara tíma og orku. Til að bera saman ólíkar jarðvinnsluaðferðir við íslenskar aðstæður voru lagðar út jarðræktartilraunir í Keldudal í Skagafirði þar sem borin var saman byggrækt með fimm mismunandi jarðvinnsluaðferðum á þremur mismunandi jarðvegstegundum. Borin var saman haustplæging, haustherfing – vorplæging, vorplæging, plógherfing og ísáning. Sáðbeðsvinna var herfing með pinnatætara og eins í öllum jarðvinnsluliðum. Jarðvegurinn sem tilrauninar voru á var framræstur kýfður mýrarjarðvegur, mólendisjarðvegur og leirborinn sandjarðvegur. Jafnframt voru skoðuð áhrif vaxandi köfnunarefniskammta og vaxandi sáðskammta. Í annari tilraun voru skoðuð áhrif illgresiseyða og sveppaeyða á plægðum, plógherfuðum eða ísáðum móajarðveg. Helstu niðurstöður voru að lítill munur var á uppskeru plægingaliða. Haustvinnsla á jarðvegi seinnkaði hlýnun jarðvegs að vori. Haustherfing flýtti ekki vorvinnu. Létt jarðvinnsla eins og plógherfing getur gefið sambærilega uppskeru og plæging á öllum jarðvegsgerðum en það þarf að meðhöndla akrana með illgresiseyðum og á léttum jarðvegi þarf að auka áburðarskammta um 20-30%. Ísáning gaf marktækt lélegri uppskeru en plæging á öllum jarðvegsgerðum. Notkun illgresiseyða og sveppaeyða eykur mest uppskeru við ísáningu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þórarinn Leifsson 1966-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 14Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28238
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28238