Abstract
dc:description.abstractFrá mars til júní árið 2007 voru vaðfuglar taldir á nokkrum leirum á Vesturlandi. Meginmarkmiðið með því var að skrásetja komutíma þeirra á leirurnar, tegundasamsetningu og fjölda, auk þess að kanna hvort munur væri á milli þriggja svæða, Mýra, Snæfellsness og norðanverðs Breiðafjarðar. Fyrstu einstaklingar hverrar tegundar sáust á tímabilinu frá byrjun apríl til miðs maí, mismunandi eftir tegundum. Tjaldar og sendlingar hafa hér vetursetu og var því ekki hægt að greina komu fyrstu farfugla þeirra tegunda. Tjaldar voru í hámarksfjölda við upphaf talninga í mars. Ekki var greinilegur munur á komutíma milli Snæfellsness og Mýra en engin tegund sást fyrst við norðanverðan Breiðafjörð. Flestar tegundir náðu hámarki fyrst á Mýrum. Rauðbrystingur var algengasta tegundin og jafnframt sú eina sem fyrst náði hámarki við norðanverðan Breiðafjörð. Um mánaðamótin maí-júní fór tegundum á leirum að fækka. Mikilvægt er að fylgjast með þróun komutíma og stofnstærðar, meðal annars til að sjá hvernig farfuglar bregðast við loftslagsbreytingum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Svanhvít Lilja Viðarsdóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28006
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28006