Agricultural University of Iceland
Mannvirki í landslagi. Áningarstaðir í sátt við umhverfið
Abstract
dc:description.abstractMeð tilkomu gríðalegrar aukningar ferðamanna til landsins á síðustu árum hafa skapast mikil tækifæri og áskoranir tengd uppbyggingu aðstöðu fyrir ferðamenn en um leið ýmis vandamál tengd umhverfisþáttum. Vandamál sem við vorum jafnvel ekki í stakk búin að takast á við. Þar hefur ástand á þjóðvegum landsins ekki farið framhjá neinum ásamt átroðningi á viðkvæmri náttúru okkar. Í þessu verkefni er almennt fjallað um áningarstaði á Íslandi og mikilvægi upplifunarþátta og gildi góðrar hönnunar áningarstaða ásamt því að sýna fram á mikilvægi þess að hugað sé markvisst að uppbyggingu áningarstaða til þess að styrkja innviði ferðaþjónustunnar. Sérstök áhersla er einnig lögð á forsendur þess að horfa á heildarmyndina og hvað góður undirbúningur við hönnun áningarstaða getur verið mikilvægur og hvernig hann getur haft áhrif á að ferðamaðurinn verði fyrir hugrifum og skapi sér einstæðar minningar. Einnig er fjallað um lög og reglur sem þarf að fylgja varðandi framkvæmdir og mannvirkjagerð í landslagi og er markmiðið að viðfangsefnið myndi flæði og byggja góðan grunn fyrir hönnunartillögu. Bifreiðastæði í Kambabrún í Ölfusi var tekin fyrir sem dæmi, svæðið greint og í kjölfarið unnin hönnunartillaga að áningarstað á svæðinu með það í huga að hanna áningarstað sem m.a. ferðamaðurinn dvelur lengur á, sem eflir jákvæða upplifun og sem er í sátt við umhverfið.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Rebekka Guðmundsdóttir 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 9Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28003
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28003