Agricultural University of Iceland
Sjálfbær þróun orkumála á Íslandi. Efling nýtingar og framleiðslu endurnýjanlegs metanóls til samgangna
Abstract
dc:description.abstractMeð aukinni orkunotkun á heimsvísu, hlýnun jarðarinnar og takmarkaðra vista af jarðefnaeldsneyti er æskilegt að nýting óhefðbundinna orkugjafa aukist í náinni framtíð. Samhliða er mikilvægt að stuðla að því að draga sem mest úr orkunotkun almennt. Með sjálfbæra þróun að leiðarljósi er nauðsynlegt að hafa vistfræðilegar stoðir í forgrunni við val á orkugjafa hverju sinni og leyfa ekki einungis efnahagslegum forsendum til skamms tíma að stýra ferðinni. Markmið þessarar ritgerðar er að fara yfir möguleika Íslendinga á að nýta aðföng þjóðarinnar til aukins orkusjálfstæðis. Í kastljósi verður metanólframleiðslan í Svartsengi. Þetta er gert vegna framúrstefnulegra ferla sem þeir hafa tileinkað sér sem felast samtímis í endurnýtingu koldíoxíðs og umbreytingu raforku í efnaorku. Þessi lokaritgerð er skrifuð til BS.c prófs við Landbúnaðarháskóla Íslands vorið 2017. Gert var yfirlit yfir möguleika Íslendinga á aukinni sjálfbærni í orkumálum. Framleiðsla og notkun metanóls var höfð að leiðarljósi. Tilgangurinn með því er að auka sýnileika á þeim kostum sem fylgja þeim tiltekna orkugjafa. Hér á landi eru auðlindir fyrir orkuvinnslu nægar til að mæta eftirspurn og tækniþekking mikil og því rík ástæða til þess að leggja áherslu á og hvetja innleiðingu orkugjafa sem teljast umhverfisvænni en þeir hefðbundnu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Rafn Helgason 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28002
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28002