Agricultural University of Iceland
Leiksvæðastefna Reykjavíkur – Grenndarvellir, ástand, eignarhald og notkun
Abstract
dc:description.abstractGræn svæði og aðgengi að þeim eru mikilvæg fyrir lýðheilsu íbúa samkvæmt fjölda rannsókna. Reykjavíkurborg er með um 260 leiksvæði á sínum vegum víðsvegar um borgina sem eru í misgóðu ástandi. Ákveðið var að skoða hvernig ástand, nýting og notkun grenndarvalla væri eftir skipulagi og eignarhaldi þeirra? Tekin voru fyrir fjögur leiksvæði á litlu svæði í Fossvogi og var saga þeira skoðuð ásamt því að farið var á svæðin til að skoða notkun þeirra. Rætt var bæði við íbúa í hverfunum og starfsmenn borgarinnar. Leiksvæðastefna borgarinnar var skoðuð og svæðin metin út frá henni og hvort henni hefði verið fylgt eftir. Til samanburðar voru höfð þrjú önnur leiksvæði í eigu borgarinnar og eitt leiksvæði í eigu íbúa. Í ljós kom að eignarhald virðist ekki skipta máli þegar kemur að viðhaldi og nýtingu leikvallanna. Staðsetning og virkni og áhugi íbúa virðist skipta mestu máli. Það kom einnig í ljós að þó að leiksvæðastefnan sé vel gerð og áhugaverð þá eru vankantar á að unnið sé eftir henni og að allir starfsmenn borgarinnar viti af henni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Heiða Ágústsdóttir 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/27991
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/27991