Back to search

Agricultural University of Iceland

Verðmæti Laugardalsins Hefur skipulag áhrif á fasteignaverð

Abstract

dc:description.abstract

Verðmæti útivistarsvæða hefur ekki verið mikið rannsakað hér á landi. Í þessari rannsókn er verðmæti útivistarsvæðisins í Laugardal Reykjavík skoðað út frá fasteignaverði með óbeinu verðmati (e. Hedonic price technique). Metið er hvort útivistarsvæðið sé áhrifaþáttur í fasteignaverði eða sóun á góðu byggingalandi. Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir byggingarlóðum verið talsvert meiri en framboð. Það er því mikilvægt fyrir skipulagsfræðinga að átta sig á verðmætum útivistarsvæða við skipulagsgerð, einnig að hægt sé að benda á hagræn rök fyrir tilurð vandaðra útivistarsvæða. Ekki er mikið af gögnum hér á landi, sem skipulagsfræðingar geta stuðst við í skipulagsgerð, sem staðfesta hagræn áhrif útivistarsvæða. Gögn er snúa að fasteignamarkaði eru hinsvegar aðgengileg, safnað saman af opinberum aðila, Þjóðskrá Íslands, og samantektir birtar á vefsíðu stofnunarinnar. I þessari rannsókn er skoðað hvort fasteignir í fjölbýli í nánd við útivistarsvæðið í Laugardalnum eru hærra verðlagðar en þær sem fjær standa. Mat er lagt á hvort merkjanlegur munur er á verði fasteignanna eftir því hversu nálægt þær eru útivistarsvæðinu í Laugardalnum, mælt í metrum. Eignunum er skipt upp í tvo flokka, annarsvegar eignir innan 200 metra frá jaðri og hinsvegar eignir utan 200 metra frá jaðri. Einnig er mat lagt á hvort útsýni, þ.e. hvort hægt er að horfa úr einhverju stað fasteignarinnar yfir Laugardalinn, hefur áhrif á verð. Með niðurstöðum rannsóknarinnar, verður hægt með þessum hætti að leggja mat á peningalegt verðmæti Laugardalsins í Reykjavík.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynjar Þór Jónasson 1974-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25098
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25098

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynjar Þór Jónasson 1974-. Verðmæti Laugardalsins Hefur skipulag áhrif á fasteignaverð. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25098