Back to search

Agricultural University of Iceland

Skipulag, staða og stefnumótun ferðaþjónustu í aðalskipulagi sveitarfélaga á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Ferðaþjónustan hefur vaxið sem atvinnugrein á undanförnum árum. Talsverðar breytingar hafa orðið á umgjörð og rekstrarforsendum hennar. Landnotkun hefur breyst með tilkomu ferðaþjónustunnar og áhrif á íbúa og sveitarfélög eru að verða meiri, bæði jákvæð og neikvæð. Ferðaþjónusta getur skapað atvinnu, tekjur og stuðlað að byggðafestu, en á sama tíma nýtir atvinnugreinin sér ákveðna samfélagslega þætti og eins nýtir hún sér ákveðin almannagæði í starfsemi sinni. Áhrif ferðaþjónustunnar á innviði og grunngerð sveitarfélaga hafa lítið sem ekkert verið könnuð þrátt fyrir að fjölmörg sveitarfélög byggi í vaxandi mæli á ferðaþjónustu í atvinnustefnu sinni, að einhverju eða öllu leyti. Í ljósi þess er mikilvægt að sveitarfélög geri stefnumótandi áætlanir um það hvernig þau ætli sér að takast á við fjölda ferðamanna, umfang, uppbyggingu og þau áhrif sem ferðaþjónustan hefur á umhverfið. Mikilvægt er að móta framtíðarsýn um þá þætti í starfsemi sveitarfélaga sem snúa að ferðaþjónustunni s.s. skipulagsmál, innviði og grunngerð. Tryggja verður sjónarmið sjálfbærrar ferðaþjónustu, bæði hvað varðar varðveislu náttúruauðlinda og til að atvinnugreinin geti starfað í sátt við íbúa og ferðamenn. Með hliðsjón af ríkum áhrifum ferðaþjónustu á umhverfið sitt er áhugavert að skoða hvernig sveitarfélögin huga að ferðaþjónustunni þar sem sum þeirra eiga verulegra hagsmuna að gæta. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig ferðaþjónusta er skilgreind í aðalskipulagsáætlunum sveitarfélaga. Aðalskipulag er lögformleg skipulagsáætlun sveitarfélaga þar sem skilgreind er þróun landnotkunar og byggðar í sveitarfélaginu til a.m.k. 12 ára tímabils. Helstu niðurstöður eru þær að í mörgum aðalskipulagsáætlunum skortir á að skýrar og stefnumótandi áherslur séu settar fram þegar kemur að ferðaþjónustu eða uppbyggingu hennar í sveitarfélaginu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir 1975-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25097
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25097

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir 1975-. Skipulag, staða og stefnumótun ferðaþjónustu í aðalskipulagi sveitarfélaga á Íslandi. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25097