Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni rannsóknarinnar var að kanna hvort munur væri á taumþrýstingi milli hliða hjá átta íslenskum hestum á milliferð á tölti. Fjórir knapar voru fengnir til að ríða öllum hestunum. Notast var við taumþrýstingsmæla frá Centaur sem mældu taumþrýsting hægri og vinstri tauma í Newton metrum. Rannsóknin fór fam í Þráarhöll á Hólum í Hjaltadal og notast var við 20m x 40m svæði. Einn hringur var riðinn á hægri hönd og einn á vinstri hönd til að gera greinamun á því hvort munur væri á taumþrýstingi hjá hestum og eða knöpum eftir því uppá hvora höndina var riðið. Við greiningu niðurstaðna var fyrst stuðst við mælingar á meðalþrýstingi á hægri og vinstri taumum hjá öllum hestum og öllum knöpum, óháð uppá hvora höndina var riðið. Þar á eftir var skoðað hvort munur kæmi fram á meðal þrýstingi vinstri og hægri tauma hjá hestum og knöpum eftir því hvort riðið var á hægri eða vinstri hönd. Marktækur munur var á taumþrýstingi milli hesta en ekki var um marktækan mun að ræða milli knapa. Á heildina litið var taumþrýstingurinn að jafnaði nokkuð jafn milli hliða, 23.5 N á vinstri taum og 22.62 N á hægri taum. Hæsti meðalþrýstingur á vinstri taum mældist 38.46 N og 40.26 N á hægri taum hjá hesti þrjú en lægsti meðalþrýstingur á vinstri taum var 6.35 N og 6.06 N á hægri taum hjá hesti eitt. Út frá mun á taumþrýstingi milli hliða eftir því upp á hvora höndina var riðið, kom fram áberandi munur hjá tveimur hestum, óháð knapa, þegar þeim var riðið á hægri hönd. Hjá hesti fimm var aukinn þrýstingur á innri taum (-5.225 N ) sem getur bent til að hann eigi erfitt með að sveigja sig til hægri og teygja á vinstri hliðinni. Hestur sjö var hinsvegar með áberandi aukinn þrýsting á vinstri tauminn þegar honum var riðið á hægri hönd (8.8 N). Getur það bent til að hann sé með sterkari vinstri hlið, sæki inn og eigi erfitt með að ganga samspora uppá hægri hönd.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigurlína Erla Magnúsdóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25093
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25093