Back to search

Agricultural University of Iceland

Tjón af völdum ágangs álfta og gæsa á ræktað land

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er tjón af völdum ágangs álfta og gæsa á ræktað land þar sem leitast verður við að svara spurningum hvort bændur verði fyrir tjóni, hvort þeir verjast því og hvernig það gangi. Megin markmiðið var að draga saman upplýsingar um tjón af völdum beitar álfta, grágæsa og heiðagæsa og einnig að skoða notkun varna gegn fuglabeit og reynslu af þeim. Gerður var spurningalisti og svörum safnað frá 44 bændum úr þremur hreppum; Fljótsdalshreppi á Fljótsdalshéraði, Grýtubakkahreppi í Eyjafirði og Hrunamannahreppi í Árnessýslu. Tæplega 98% bændanna sem svöruðu telja sig verða fyrir tjóni að einhverju leiti af völdum ágangs álfta og gæsa. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þörf er á að finna lausn fyrir bændur til að stemma stigu við ágangi álfta og gæsa. Umfang tjóna var mjög breytilegt milli hreppa. Í Fljótsdalshreppi var umfang tjóna að mati bænda talið hvað mest vegna áhrifa frá Kárahnjúkavirkjun. Í Grýtubakkahreppi var tjón metið í meðallagi mikið, þar verður helmingur jarðanna fyrir verulegum ágangi gæsa og álfta en hinn helmingurinn sleppur með lítinn ágang. Bændur í Hrunamannahreppi telja sig verða fyrir tjóni en ekki mjög miklu. Margir bændanna eða 89% notast við einhverjar varnir til að verjast tjóni í ræktarlöndum sínum. Sömu varnirnar hafa verið notaðar á Íslandi í mörg ár, fuglarnir eru farnir að þekkja þær og eru því ekki að fælast frá ræktarlöndum eins og þeir ættu að gera.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurlaug J Ó Þorsteinsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25092
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25092

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurlaug J Ó Þorsteinsdóttir 1987-. Tjón af völdum ágangs álfta og gæsa á ræktað land. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25092