Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari eru tekin saman flest öll ferðaþjónustubú á Vesturlandi, staðsetning þeirra greind út frá vegakerfi og áhrif staðsetningar á rekstur. Samkvæmt ábúendum á ferðaþjónustubúum hætta ferðamenn oft við að heimsækja bú er standa lengra frá þjóðvegi vegna vegalengdar eða ástands vegar. Að hafa skilti sem vísar á búið, staðsett við þjóðveg er samkvæmt greiningum í þessu riti góð auglýsing og hefur mikil áhrif á að draga ferðamanninn að. Þeir bæir sem standa nær þjóðvegi og hafa sterkari tengingar við aðra ferðaþjónustu í nálægð við sig virðast standa betur að vígi en önnur bú þegar kemur að því að draga ferðamenn að búinu. Er það eina ástæðan fyrir því að rekstur ferðaþjónustubúa á þessum svæðum virðist ganga betur? Staðsetning virðist vera mikilvæg þegar kemur að ferðaþjónustu,sama hvaða mynd sú þjónusta tekur á sig og þá virðist tengingar við annarskonar þjónustu í nálægð vera mikilvægar. Hvaða atriði eru það við staðsetningu sem skiptir mestu máli? Eftir greiningarvinnu við rit þetta virðist svarið vera aðgengi að ferðaþjónustustað og tengingar við aðra þjónustu í nágreninu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Rögnvaldur Þorbjarnarson 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25088
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25088