Back to search

Agricultural University of Iceland

Einkirnabreytileiki í Centroradialis geninu í íslenskum byggyrkjum

Abstract

dc:description.abstract

Skilningur á þeim lífeðlisfræðilegum ferlum er stjórna lífsferlum plantna hefur mönnum lengi verið hugleikinn ekki síst m.t.t. nytjaplantna þar sem þær eru undirstaða allrar landbúnaðarframleiðslu. Ýmsar rannsóknir á undanförnum árum hafa leitast við að skýra aðlögun byggyrkja að norðurslóðum og þarf vart að undirstrika mikilvægi þeirra þar sem þær skjóta stoðum undir kynbætur með aðstoð erfðamarka. Bygg er nokkuð harðgerð nytjaplanta sem sýnt hefur mikla aðlögunarhæfni. Hún þolir meiri þurrka, seltu, kaldara loftslag og gerir minni kröfur til jarðvegs heldur en aðrar korntegundir, auk þess sem hún þarf styttri tíma til að ná þroska. Allt eru þetta eiginleikar sem gera tegundina svo mikilvæga á tímum fólksfjölgunar og hnattrænnar hlýnunar. Með nýlegri rannsókn kom í ljós að gen í byggi, HvCEN, á þátt í aðlögunarhæfni þess og var það markmið þessarar rannsóknar að raðgreina þetta gen í íslenskum og erlendum byggyrkjum sem áður höfðu verið svipgerðargreind m.t.t. flýtis. DNA var einangrað, mögnun og rafdráttur framkvæmdur, auk DNA útdráttar en vegna tímahraks misfórst að senda sýni í raðgreiningu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aldís Björk Sigurðardóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25069
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25069

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aldís Björk Sigurðardóttir 1973-. Einkirnabreytileiki í Centroradialis geninu í íslenskum byggyrkjum. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25069