Back to search

Agricultural University of Iceland

Sólheimar í Grímsnesi - Litli orkugarður

Abstract

dc:description.abstract

Þetta lokaverkefni er til BS prófs á umhverfisskipulagsbraut við Landbúnaðarháskóla Íslands og fjallar um Sólheima í Grímsnesi og sýningu þeirra um endurnýjanlega orkugjafa. Markmið verkefnisins er að koma fræðslusýningunni „Hrein orka - betri heimur“ fyrir utandyra á Sólheimum. Leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum: Hvar er best að staðsetja sýninguna utandyra á Sólheimum? Hvernig garð er hægt að hanna fyrir sýninguna? Er möguleiki að hafa sýninguna gagnvirka? Saga Sólheima var skoðuð og forsendur núverandi starfssemi, farið var yfir sögu Sesselju Sigmundsdóttur, stofnanda Sólheima, kenningar Rudolf Steiners, sjálfbærni og vistvæn þorp. Þá var gerð athugun á Sólheimasvæðinu öllu og á sýningunni „Hrein orka - betri heimur“. Því næst hófst verkefnavinna við gagnaöflun, greining á staðháttum og síðar hugmyndavinna. Í framhaldi af því var staðarval hönnunarsvæðis ákveðið og hönnunartillaga var síðan sett fram. Mjög vel gekk að velja staðsetningu garðsins sem mun endurspegla hugmyndafræði Sólheima með því að nota endurnýjanlega orkugjafa til að framleiða rafmagn fyrir lýsingu á svæðinu. Í garðinum verður lögð áhersla á að gott aðgengi verði fyrir alla en mikið af fólki með hreyfihömlun býr á svæðinu og því nauðsynlegt að svæðið verði nokkuð slétt, stígar verða að vera breiðir og með bundnu slitlagi og ekki í miklum halla. Sólheimar endurvinna nánast allt sem hægt er að endurvinna og verður því efniviður í garðinum endurnýttur eins og hægt er. Sýningin verður að hluta til gagnvirk og stundum getur fólk tekið þátt til að sjá orkugjafann virka en stundum er hægt að skoða þá og fræðast um þá á upplýsingaskiltum. Garðurinn verður ekki einungis til fræðslu heldur mun hann vera heillandi staður sem býður upp á möguleika sem samkomustaður til að njóta útiveru og að slaka á.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Heiðdís Halla Sigurðardóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22078
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22078

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiðdís Halla Sigurðardóttir 1985-. Sólheimar í Grímsnesi - Litli orkugarður. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22078