Back to search

Agricultural University of Iceland

Útivistar- og ferðamannaaðstaða í hlíðum Esju

Abstract

dc:description.abstract

„Esjan er ákaflega vel staðsett andspænis Reykjavík, hún veitir okkur borgarbúum öryggistilfinningu án þess að vera uppáþrengjandi. Hún er eins og bók, við lesum hana á hverjum degi, textinn er aldrei sá sami á hlíðum hennar, skrifaður í litbrigðum birtunnar.“ (Sigurður Pálsson, 2014, bls. 128). Útivistarsvæði við Esjuna hefur á seinustu árum vaxið mjög í vinsældum. Því veldur nálægð fjallsins við höfuðborgarsvæðið, nánd við ósnerta náttúru og aukinn áhugi á hreyfingu og útivist. Esjan er sterkt kennileiti við höfuðborgina, og flestir höfuðborgarbúar, ef ekki landsmenn, þekkja hana í sjón. Verkefni þetta felur í sér að auka aðdráttarafl og fjölga útivistar- og afþreyingamöguleikum í Esjuhlíðum, ásamt því að greina möguleika Rauðhóls í Esjuhlíðum sem áningarstaðar fyrir kláfsferju, svokallaða Esjuferju, sem og sjálfstæðs útivistarsvæðis. Svæðið þarf að henta bæði innlendum og erlendum ferðamönnum, auk þess sem æskilegt er að það nýtist árið um kring. Verkefnið er unnið eftir forsendum áætlaðrar Esjuferju sem Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar undirbýr að reisa í hlíðum fjallsins. Veðurfarsgreining ásamt jarðfræðigreiningu og greiningu á núverandi notkun svæðisins er partur af verkefninu, auk þess sem rýnt verður í niðurstöður áhuga- og viðhorfskannana sem framkvæmdar hafa verið. Mikið af gögnum fengust frá Verkfræðistofu Jóhanns Indriðasonar, Veðurstofu Íslands og úr bæði gildandi og drögum að skipulagsáætlunum. Gagnaöflun og greining á nærsvæði er unnin áður en vinna við skipulagstillögu hefst.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnar Kári Oddsson 1990-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22077
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22077

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnar Kári Oddsson 1990-. Útivistar- og ferðamannaaðstaða í hlíðum Esju. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22077