Back to search

Agricultural University of Iceland

Áhrif þess að halda gemlingum á endingu og æviafurðir

Abstract

dc:description.abstract

Um miðja síðustu öld jókst til muna að hleypt væri til gimbra. Var það gert í kjölfar mæðiveikinnar sem þá herjaði á sauðfé landsins. Þegar byrjað var að hleypa til gimbra á þessum tíma var skoðað hvaða áhrif það hefði á ær og frammistöðu þeirra. Margt hefur breyst síðan þá í búskaparháttum og því orðið vöntun á nýlegra efni. Samhliða auknum fóðurgæðum og meiri vitund um þarfir áa var áhugavert að kanna áhrif þess að halda gemlingum nú á dögum á þroska þeirra og frjósemi síðar á ævinni. Gögn voru fengin frá tilraunabúinu á Hesti í Borgarfirði, en þau náðu yfir framleiðsluárin 2002-2012. Gögnin höfðu að geyma 6.647 færslur, þar sem ein færsla var fyrir hvert afurðaár sem hver ær skilaði. Í hverri færslu kom fram ætterni ærinnar, þungi hennar, holdastig, burður hvert framleiðsluár, afurðastig hvers árs og hverju ærin skilaði á hverju hausti. Í niðurstöðum kom í ljós að það að skila dilki að hausti hefur mest áhrif á þunga og holdastig ánna á öðru ári og munaði að meðaltali 8 kg á þunga þeirra áa sem skiluðu dilki sem gemlingar og þeirra sem voru ekki með lambi fyrsta árið. Að skila lambi sem gemlingur hafði marktæk áhrif á þunga ánna mestan hluta ævi þeirra, en þær voru alltaf léttari en þær sem ekki skiluðu lambi gemlingsárið. Þrátt fyrir það voru þær ekki marktækt holdminni. Hvort ærnar höfðu gengið með lamb sem gemlingar hafði einungis jákvæð áhrif á frjósemi ánna á öðru ári, en engin áhrif síðar á ævinni. Frjósemin réðst meira af því hversu frjósöm ærin var sem gemlingur og gefur gemlingsárið okkur góða vísbendingu um frjósemi ánna síðar á ævinni. Að ganga með lambi sem gemlingur hafði engin áhrif á afurðir ánna síðar á ævinni og lítil áhrif á endingu þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Linda Sif Níelsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22073
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22073

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Linda Sif Níelsdóttir 1987-. Áhrif þess að halda gemlingum á endingu og æviafurðir. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22073