Back to search

Agricultural University of Iceland

Fóðrun hesta á húsi yfir vetrartímann

Abstract

dc:description.abstract

Hestamennska er íþrótt sem gengur út á samspil hests og manns. Samspilið getur verið flókið ef tryggja á að öllum þörfum hests sé mætt og nauðsynlegt er að aldrei verði stöðnun í þróun betri lífsgæða hestsins. Fóðrun er eitt það mikilvægasta í hestahaldi og vandmeðfarin. Viðfangsefni ritgerðarinnar er fóðrun hesta á húsi yfir vetrartímann og höfundur ákvað að nálgast viðfangsefnið með því að gera rannsókn á viðfangsefninu. Spurningalisti var lagður fyrir hestamenn í fjórum hesthúsahverfum á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu febrúar til mars 2015. Rannsakandi heimsótti 72 hesthús og náði úrtakið til 527 hesta. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort hestamenn byggja fóðrun hrossa á einhverjum efnagreiningum við fóðrun á húsi yfir vetrartímann. Tilgangur rannsóknarinnar var jafnframt að kanna hvort fóðrunin sé í samræmi við brúkun og þjálfun hrossanna og hvort hestamenn hafi orðið varir við sjúkdóma sem geta stafað af fóðrun. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að almennt er fóðrun hesta ekki byggð á heyefnagreiningu. Aðeins 5,6% af úrtakinu hafði látið efnagreina heyið. Mikill áhugi var fyrir að nýta efnagreiningar við fóðrun (87,7%) ef hún væri til staðar. Þátttakendur sem vigtuðu gróffóðrið ofan í hesta sína voru 47,2% og bjóst rannsakandi ekki við þessari niðurstöðu, sem sýnir að fræðsla er mikilvæg fyrir hestamenn. Þekking þátttakenda á lýsi og notkun saltsteina var lítil, sem bendir til nauðsynjar á fræðslu til hestamanna um mikilvægi þeirra þegar kemur að fóðrun. Hestar í þjálfun þurfa að hafa gott aðgengi að saltsteini til að viðhalda saltþörf líkamans en því virðist vera veruleg ábótavant. Á síðustu áratugum hefur tíðni sjúkdóma farið minnkandi. Aðeins tvö tilfelli af múkki kom upp í þessari rannsókn og fjögur tilfelli af hrossasótt. Álykta má út frá niðurstöðunum að þekking hestamanna á fóðrun og fóðurþörfum sé ábótavant á mörgum stöðum. Kynna þarf heyefnagreiningu betur fyrir hestamönnum, annars er hætta á vanfóðrun eða offóðrun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Birna Björnsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22072
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22072

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Birna Björnsdóttir 1991-. Fóðrun hesta á húsi yfir vetrartímann. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22072