Back to search

Agricultural University of Iceland

Vistheimt í þéttbýli - Gróðurfar í Reykjavík og möguleikar til að fjölga innlendum plöntutegundum

Abstract

dc:description.abstract

Í vaxandi mæli er farið að líta á þéttbýli sem vistkerfi. Í því sambandi hefur athyglin beinst að stóru vistspori þéttbýlis og aðferðum til að draga úr því. Markmið þessa verkefnis voru að kanna hvers konar gróðurlendi finnast innan þéttbýlis, hvers konar gróður er ríkjandi á hverju gróðurlendi og kanna mögulegar leiðir til þess að auka líffræðilega fjölbreytni á grænum svæðum. Það eru mikilvæg skref í átt til vistheimtar í þéttbýli. Verkefnið var unnið í tveimur hlutum, annars vegar var gerð rannsókn á gróðurfari nokkurra grænna svæða í Reykjavík og hins vegar rannsókn á leiðum til að fjölga nokkrum innlendum plöntutegundum. Gróðurfarsrannsóknin var framkvæmd á 20-45 ha svæðum innan fjögurra misgamalla hverfa Reykjavíkur. Upplýsingar um græn svæði hvers hverfis voru skráðar niður og þau flokkuð niður eftir ríkjandi gróðurfari. Nokkur græn svæði í hverju hverfi og hverjum flokki voru valin af handahófi til gróðurgreininga sumarið 2013. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að svæði með tiltölulega fábreyttum graslendisgróðri voru langalgengust á rannsóknarsvæðunum, eða um 77% allra grænna svæða. Tegundaauðgi og tegundafjölbreytni var marktækt meiri á mólendissvæðum en graslendissvæðum en mólendissvæðin voru mun færri, eða rúmlega 8% allra grænna svæða og fundust aðeins í nýrri hverfunum. Því má álykta að til þess að viðhalda líffræðilegri fjölbreytni á grænum svæðum í Reykjavík sé æskilegt að auka tegundafjölbreytni á graslendissvæðum og varðveita mólendi þar sem það er að finna. Rannsóknin á möguleikum til fjölgunar innlendra plöntutegunda beindist einkum að söfnun og prófun fræs nokkurra innlendra plöntutegunda, tilraunum til að sá þeim utandyra og upplýsingaöflun um vistfræðilega eiginleika þeirra. Haustin 2011 og 2012 var fræi nokkurra innlendra plöntutegunda safnað í nágrenni Reykjavíkur. Fræið var spírunarprófað og 20 tegundir voru valdar til notkunar í fjölgunartilraunir. Búin var til sáðblanda úr 12 tegundum sem prófuð var í fimm meðferðum en fræi hinna tegundanna átta var sáð sér í bakka. Fylgst var með spírun og lifun tegundanna yfir sumarið 2013. Hlutfall lifandi sáðplantna var afar mismunandi milli tegunda í sáðblöndunni, frá 0-34%. Lifun og þekja tegundanna sem sáð var sér var almennt betri en tegundanna í sáðblöndunni. Niðurstöður fjölgunartilraunanna ásamt heimildavinnu voru síðan notaðar til að útbúa upplýsingablöð um vistfræðilega eiginleika og notkunarmöguleika hverrar af þessum 20 tegundum. Hægt var að nota aðferðirnar sem prófaðar voru til að fjölga flestum tegundunum og það býður upp á ýmis tækifæri til notkunar þessara tegunda til vistheimtar í þéttbýli.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Óskarsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22000
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22000

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Óskarsdóttir 1989-. Vistheimt í þéttbýli - Gróðurfar í Reykjavík og möguleikar til að fjölga innlendum plöntutegundum. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22000