Agricultural University of Iceland
Rýnt í skipulagseinkenni þéttbýlisstaða í fjörðum á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractBorgarformfræði leitast eftir að skoða þróun og vöxt skipulaga. M.R.G. Conzen lagði áherslu á að rýna í borgarformin og byggðarmynstrin ásamt sögulegri þróun til á átta sig á skipulagseinkennum. Caniggia rýndi í leiðandi byggingarstíla til að finna ráðandi formgerð hvers tíma. Hann setti byggingar og form þeirra í sögulegt samhengi sem mynduðu hlekki í tungumáli byggingararfleifðar. Sigríður Kristjánsdóttir beitti aðferðum borgarformfræði og skoðaði vaxtarskeið og ráðandi formgerð í Reykjavík. Hún fléttaði saman aðferðir Conzen og Caniggia til að greina borgarformin í Reykjavík. Hluti af rannsóknaraðferð hennar var endurtekin á þrem öðrum þéttbýlisstöðum á Íslandi. Þéttbýlisstaðirnir sem valdir voru, Ísafjörður í Skutulsfirði, Siglufjörður í Siglufirði og Neskaupstaður í Norðfirði, mynduðust við áþekkar aðstæður í þröngum fjörðum. Dregin eru fram vaxtarskeið, borgarform og ráðandi formgerð staðanna, hvers fyrir sig og sameiginlega, til að greina lýsandi skipulagseinkenni. Þéttbýlisstaðir byggjast svipað upp á Íslandi en náttúran er helsti áhrifavaldur í þróun þeirra ásamt sjávarútvegi. Greiningar á þéttbýlisstöðunum bentu til samspils milli ílanga byggðarformsins og stærð undirlendis. Þéttbýlisstaðirnir þrír eiga sér mörg sameiginleg skipulagseinkenni og landslag fjarðanna er ámóta. Vaxtarskeið er þau sömu og í Reykjavík en lögun og form skipulaganna er öðruvísi þar sem landslag er þrengra og undirlendi af skornari skammti en í Reykjavík. Greiningar á skipulagseinkennum þéttbýlisstaða í fjörðum veita góða innsýn í þróun þéttbýlisstaða við strandlínu Íslands.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- María Guðbjörg Jóhannsdóttir 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/20714
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/20714