Back to search

Agricultural University of Iceland

Borgarfjallið Esja : útivistarsvæði við borgarmörk

Abstract

dc:description.abstract

Breyttur lífsstíll og vitundarvakning um mikilvægi útivistar og hreyfingar fyrir bætta lýðheilsu hefur á undanförnum árum haft í för með sér aukna notkun á útivistarsvæðum á jaðarbeltum höfuðborgarsvæðisins. Borgarfjallið Esja er eitt af þeim svæðum þar sem sífellt fleiri stunda útivist og hreyfingu sér til skemmtunar og heilsubótar. Erfitt er að meta til fulls þá kosti sem svæðið hefur. Því er hætta á að litið verði framhjá þeim í skipulagi og meiri hagsmunum mögulega fórnað fyrir minni. Mikilvægt er að sveitarfélög kortleggi þau tækifæri sem felast í gæðum útivistarsvæða við borgarmörk og marki sér stefnu um nýtingu þeirra í samráði við aðra aðila sem svæðinu tengjast. Þannig má nýta betur þau verðmæti sem í svæðunum felast og styðja við nauðsynlegt viðhald þeirra og uppbyggingu. Helstu markmið með athuguninni eru að greina notkun athugunarsvæðis sunnan við Esju með spurningakönnun og djúpviðtölum. Með því er ætlunin að draga betur fram kosti þess að borgarbúar hafi aðgang að útivistarsvæðum við borgarmörk og efla um leið þekkingu á notkun og viðhorfi notenda. Verkefnið leiddi í ljós að notendur eru helst að sækjast eftir að upplifa náttúruna og að komast á útivistarsvæði í nálægð við höfuðborgarsvæðið. Flestir fara sömu leiðina upp fjallið þrátt fyrir fjölbreytt stígakerfi og fáir notendur taka börn með. Þá kom einnig fram að ásókn er í svæðið til annarra nota og að sú notkun gæti sett í hættu þau gæði sem núverandi notendur eru að sækjast eftir. Í lokin er komið með hugmynd að skipulagi fyrir svæðið en mikilvægt er að endanlegt deiliskipulag sé unnið í náinni samvinnu allra hagsmunaaðila til þess að sátt myndist og skilningur um ákvörðunartöku.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hallfríður Guðmundsdóttir 1972-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18687
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18687

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hallfríður Guðmundsdóttir 1972-. Borgarfjallið Esja : útivistarsvæði við borgarmörk. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18687