Back to search

Agricultural University of Iceland

Frjáls aðgangur kálfa að sýrðri mjólk

Abstract

dc:description.abstract

Frjáls aðgangur kálfa að sýrðri mjólk er fóðrunaraðferð sem reynst hefur vel víða erlendis. Ekki hafa verið gerðar nákvæmar tilraunir með þessa fóðrunaraðferð hérlendis og því vantar upplýsingar um vöxt, drukkið magn og heilbrigði kálfa á þessari fóðrunaraðferð. Tilraun var því sett upp þar sem frjáls aðgangur kálfa að sýrðri mjólk var borinn saman við stýrða mjólkurgjöf kálfa aldna á kálfafóstru. Kjarnfóðurát hópa, þungi kálfa, brjóstmál, hæð og heilbrigði var skráð. Þrír hópar af kálfum fóru í hvora meðferð og var meðferðatímabilið átta vikur. Alls voru 23 kálfar notaðir í tilraunina, þrír til fjórir í hverjum hópi í senn. Kálfar í meðferð 1 fengu frjálsan aðgang að sýrðri mjólk en kálfar í meðferð 2 fengu að hámarki 6 l/dag af mjólk í gegnum kálfafóstru. Báðar meðferðir fengu frjálsan aðgang að kjarnfóðri út meðferðatímabilið og frjálsan aðgang að heyi eftir fjórðu viku í meðferð. Kjarnfóðurát kálfa á sýrðri mjólk var skráð niður á meðan verið var að venja þá af mjólk. Kálfar á frjálsum aðgangi að sýrðri mjólk uxu og þyngdust hraðar (688 g/dag að meðaltali) en kálfar aldir á fóstru (463 g/dag að meðaltali) á meðferðatímabilinu. Kálfar aldir á sýrðri mjólk drukku að meðaltali 8,25 l/dag á meðferðatímabilinu. Kjarnfóðurát þeirra var hins vegar minna en kálfa á fóstru. Enginn kálfur á sýrðri mjólk fékk skitu á meðferðatímabilinu en sjö kálfar á fóstru fengu skitu. Það tók kálfa á sýrðri mjólk 13 daga að ná upp nógu kjarnfóðuráti við takmarkaða mjólkurgjöf til að innbyrða nægjanlegt magn af kjarnfóðri svo að vöxtur yrði ekki skertur vegna ónógs kjarnfóðuráts eftir að mjólkurgjöf var hætt. Út frá þessum niðurstöðum má álykta að kálfar aldir á sýrðri mjólk drekki meira magn af mjólk en kálfar á takmarkaðri mjólkurgjöf, vaxi hraðar og séu heilbrigðari. Niðurstöður tilraunarinnar benda til þess að frjáls aðgangur kálfa að sýrðri mjólk sé hentug fóðrunaraðferð við íslenskar aðstæður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhannes Kristjánsson 1988-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18674
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18674

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhannes Kristjánsson 1988-. Frjáls aðgangur kálfa að sýrðri mjólk. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18674