Abstract
dc:description.abstractÞyngd lamba við slátrun er einn af lykilþáttum í afkomu sauðfjárbúa. Umhverfið sem lambið lifir og þroskast í hefur mikil áhrif á þyngd lambsins að hausti. Í sauðfjárræktinni eru ákveðin umhverfisáhrif sem eru kerfisbundin og er leiðrétt fyrir þeim í kynbótauppgjöri til að fá nákvæmara kynbótamat. Þessi umhverfisáhrif eru fæðingarþungi, aldur móður, kyn lambs, tegund burðar, aldur lambs og ár. Í þessari ritgerð eru borin saman þrjú líkön með þessum breytum, ásamt þyngd og holdastigi mæðra. Markmiðið var að sjá hvað þessir umhverfisþættir höfðu mikil áhrif á haustþungann og hve mikið hver þáttur fyrir sig hafði áhrif. Í ljós kom að umhverfisáhrifin höfðu töluverð áhrif á haustþungann, en hver þáttur þó mismikil.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ingibjörg Ásta Guðmundsdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/18670
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/18670