Abstract
dc:description.abstractMarkmið verkefnisins var að sjá hvort uppskeru munur fengist með því að vökva tún með mismunandi miklu magni af vatni og hvort áhrifin væru eins í þeim reitum sem fengju tilbúinn áburð og í þeim sem fengu ekki áburð. Vökvað var melatún og mýrartún og áhrif vökvunar skoðuð á hvorum staðnum fyrir sig. Heysýni voru tekin úr öllum reitum til að bera saman mun á stein- og snefilefnum. Til þess að kanna reynslu bænda þá voru viðtöl teknin af bændum sem höfðu fjárfest í vökvunarbúnaði. Reitartilraun var sett upp annarsvegar í melatúni og hinsvegar mýrartúni voru settar upp á bæjunum Keldudal og Ríp í Hegranesi í Skagafirði. Melatúnið var staðsett í Keldudal og mýrartúnið á Ríp. Sett var upp blokkartilraun 6x3 á báðum stöðum og vökvað var í átta vikur yfir sumarið. Allir reitir voru uppskerumældir tvisvar. Vökvun á melatúni sem fengið hafði tilbúinn áburð sýndi marktækt meiri uppskeru í seinni slætti með því að vökva þá reiti með 8 mm af vatni vikulega til viðbótar við rigningu. Ekki fékkst marktækur munur í fyrri slætti í melatúninu. Í mýrartúninu fékkst marktækt minni uppskera með því að vökva hvort sem um var að ræða reiti með tilbúnum áburði eða ekki og var það eins í fyrri og seinni slætti.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elvar Örn Birgisson 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/18663
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/18663