Back to search

Agricultural University of Iceland

Mosaþembur: Áhrif rasks og leiðir til endurheimtar

Abstract

dc:description.abstract

Töluvert rask verður á mosaþembum vegna ýmissa framkvæmda, því er mikilvægt að auka þekkingu á mosaskemmdum og leiðum til að endurheimta mosaþekju þar sem hún hefur raskast. Markmið verkefnisins var að kanna hvort hraungambri geti lifað af og vaxið aftur á svæðum sem skemmst hafa við háhitaborteiga. Jafnframt að prófa aðferðir við að örva landnám mosa. Áhersla var lögð á hraungambra (Racomitrium lanuginosum [Hedw.]Brid.) en einnig voru tegundirnar melagambri (Racomitrium ericoides [Brid.] Brid.), tildurmosi (Hylocomium splendens [Hedw.] Shimp) og engjaskraut (Rhytidiadelphus squarrosus [Hedw.] Warnst) notaðar í hluta af verkefninu. Verkefnið var unnið í fórum hlutum: 1. Skemmdir á hraungambraþembum við borteiga á Hellisheiði og geta þeirra til endurvaxtar var könnuð með því að mæla tíðni skemmdra og virkra sprota í tvö ár. Tíðni virkra sprota jókst með tíma og jafnframt dró úr tíðni skemmdra sprota. 2. Áhrif þess að klippa 1,2, 3 og 5 cm af mosagreinum í hraungambraþembu voru prófuð til að líkja eftir skemmdum og tíðni endurvaxtar mæld. Endurvöxtur varð einungis þar sem klipptir voru minna en 3 cm ofan af þembunni. 3. Áhrif stærðar, uppruna af mosagreinum og undirlags á fjölgunareiningar hraungambra voru prófuð í gróðurhúsi með því að rækta heilar mosagreinar, 1 cm búta af efstu sex cm mosagreina og mosahræring á mold og vikri. Bútar af efstu 1 cm mosagreina höfðu mesta getu til að mynda nývöxt en enginn nývöxtur sást á bútum neðan við 3 cm. Árangur var betri á vikri en á mold. Til samanburðar var heilum mosagreinum og mosahræringi melagambra, tildurmosa og engjaskrauts dreift á mold og var mögulegt að rækta allar tegundirnar. 4. Í tilraunum með landnám mosa á Hellisheiði voru áhrif stærðar og undirlags prófuð í 15 mánuði með því að dreifa heilum mosagreinum, 1 cm greinabrotum af efsta hluta mosagreina og mosahræringi af hraungambra, melagambra, tildurmosa og engjaskrauti í moldarflagi ásamt því sem hraungambra var dreift á vikri. Fjölgunareiningar hraungambra námu land á árangursríkan hátt á virkri og allar tegundirnar námu land á árangursríkan hátt á mold með mosahræringi, en flestar heilar mosagreinar og 1 cm bútar hurfu úr reitum á mold. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að skemmdar hraungambraþembur við háhitaborteiga geti vaxið aftur ef skemmdirnar ná ekki dýpra en 3 cm. Niðurstöðurnar sýna einnig að hægt er að nota heilar mosagreinar, 1 cm greinabrot efst af mosagreinum og mosahræring til að örva landnám mosa á röskuðum svæðum, mold sem undirlag getur þó verið takmarkandi þáttur fyrir heilar mosagreinar og 1 cm greinabrot. Þessar niðurstöður geta nýst við ákvörðunartöku um vistheimtaraðgerðir á skemmdum mosaþembum og í vistheimt á röskuðum svæðum þar sem mosar eru ríkjandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Magnea Magnúsdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16758
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16758

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Magnea Magnúsdóttir 1977-. Mosaþembur: Áhrif rasks og leiðir til endurheimtar. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16758