Back to search

Agricultural University of Iceland

Aðgengi fatlaðra að 10 náttúruverndarsvæðum

Abstract

dc:description.abstract

Árið 2005 gerði Þórunn Edda Bjarnadóttir könnun á aðgengi fatlaðra að níu náttúruverndarsvæðum í B.s. verkefni sínu við Landbúnaðarháskóla Íslands. Markmið þessa verkefnis er að kanna hvernig aðgengi er háttað á þessum sömu svæðum í dag og hvort breytingar hafi orðið á þeim 7 árum sem liðin eru frá því Þórunn Edda gerði úttekt sína. Þau náttúruverndarsvæði sem eru í báðum úttektum eru Skaftafell, Djúpalónssandur, Almannagjá, Gullfoss, Geysir, Dimmuborgir, Hraunfossar og Barnafoss. Árið 2005 var gerð úttekt í Ásbyrgi en ófært var þangað þegar höfundur var á ferð og því var gerð úttekt í trjásafninu í Hallormsstaðarskógi í staðinn. Að auki er Arnarstapa bætt við í þessu verkefni. Í verkefninu er notaður listi yfir ákveðin atriði sem skoðuð eru á hverjum stað. Um er að ræða sama lista og notaður var árið 2005. Meðal annars er skoðuð merking og breidd bílastæða, salernisaðstaða, breidd, halli og yfirborðsefni göngustíga og útlit og staðsetning upplýsingaskilta. Í verkefninu er farið yfir helstu lög, reglur og leiðbeiningar sem snúa að aðgengi og fötluðum. Eftirtektarvert er að leiðbeiningar um aðgengi að náttúruverndarsvæðum eru ekki til, leiðbeiningar miðast almennt við umhverfi í þéttbýli. Niðurstöður úttektar eru dregnar saman og settur fram samanburður við fyrri niðurstöður. Að lokum eru settar fram tillögur um úrbætur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnar Björgvinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16738
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16738

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnar Björgvinsson 1970-. Aðgengi fatlaðra að 10 náttúruverndarsvæðum. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16738