Back to search

Agricultural University of Iceland

Áhrif feðra á vaxtargetu lamba

Abstract

dc:description.abstract

Vaxtargeta lamba er mjög flókinn eiginleiki sem markast af bæði erfða- og umhverfisþáttum. Til erfðaþáttanna teljast mjólkulagni og móðureiginleikar ásamt vaxtargetu einstaklingsins sjálfs en umhverfisþættirnir takmarkast aðallega við fóðrun og beit móður og lambs ásamt heilsufari lambsins. Í ræktunarstarfinu er sífellt verið að taka tillit til fleiri eiginleika og vaxtargeta lamba er einn af þeim eiginleikum sem hefur fengið aukna athygli síðustu ár. Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi vetrar- og sumarbeitar ef horft er á vöxt, vefjahlutföll, fallþunga auk fleiri eiginleika sauðfjárins. Flestar þær tilraunir hafa einblínt á áhrif móður ásamt umhverfisþáttunum. Lítið hefur verið horft á áhrif föður í þessu samhengi. Í þeirri tilraun sem gerð var á Presthólum í Öxarfirði sumarið 2008 var lögð áhersla á áhrif föður á vaxtargetu lamba. Í ljós kom að föðuráhrif eru meiri við fæðingarþunga heldur en síðari vigtanir. Bændur ættu að geta séð hvaða lömb taka snemma við sér og verða þung að haustinu með því að vigta lömbin fyrripart júnímánaðar. Þau lömb sem þá eru orðin þung verða það að öllum líkindum líka að haustinu. Mikill breytileiki er á milli hrúta þar sem greinilegt er að sumir lambahópar geta nýtt sér afréttarbeit að fullu og vaxa þar best en aðrir hópar nýta hana illa, koma léttir af fjalli og þurfa bötun að hausti til að fullnýta vaxtargetu sína. Sumir hrútar henta því til kynbóta sem sláturhrútar, gefa lömb sem sýna gríðarlegan uppbótarvöxt í haustbötuninni og ná mikilli þyngdaraukningu en eru jafnframt þurftarfrek. Aðrir hrútar gefa lömb sem henta betur til kynbóta í stofninum, lömbin þroskamikil og væn eftir afréttarbeit.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lára Björk Sigurðardóttir
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16522
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16522

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lára Björk Sigurðardóttir. Áhrif feðra á vaxtargetu lamba. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16522