Agricultural University of Iceland
Borðeyri : Hönnunartillaga að áhugaverðum ferðamannastað
Abstract
dc:description.abstractÍsland hefur á undanförnum árum sannað gildi sitt sem vinsælt ferðamannaland. Sprottið hafa upp ferðamannastaðir víðsvegar um landið sem bjóða upp á fjölbreytta afþreyingu og mismunandi upplifun. Borðeyri í Hrútafirði hefur ekki alveg farið varhluta af þessari uppsveiflu í ferðaþjónustu, m.a. hefur verið komið upp gistiheimili þar á síðustu árum. Markmið þessa verkefnis er að gera Borðeyri að áhugaverðum ferðamannastað í Hrútafirði. Dregin eru fram þau atriði sem mikilvæg þykja við uppbyggingu góðs ferðamannastaðar og skoðað er hvernig skipulagðar ferðamannaleiðir geta haft áhrif á ferðavenjur fólks. Til að koma auga á þau tækifæri sem felast í manngerðum og umhverfislegum staðarháttum á Borðeyri, fer fram ítarleg greiningarvinna en hún er lykillinn í góðum undirbúningi. Með því að draga saman niðurstöður greininganna er hægt að komast að því hver sérstaða staðarins er og markmiðið er að efla hana. Í lokin er lögð fram hönnunartillaga fyrir Borðeyri sem byggð er á greiningarvinnunni og þeim hönnunarforsendum sem kynntar hafa verið. Með tillögunni er leitast við að skapa aðlaðandi umhverfi sem veitir sérstaka upplifun. Þannig má auka aðdráttarafl Borðeyrar sem ferðamannastaðar á sama tíma og lífsgæði íbúa eru bætt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Aron Stefán Ólafsson 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15578
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15578