Back to search

Agricultural University of Iceland

Efnainnihald og nýting á hálmbundnu taði

Abstract

dc:description.abstract

Hér á Íslandi hefur það færst í aukana undanfarin ár að hálmur sé notaður sem undirburður fyrir hin ýmsu húsdýr. Af þeirri ástæðu er búfjáráburður víða bundinn hálmi. Tildrög að skrifum þessum eru skortur á upplýsingum um efnainnihald hálmbundins taðs og áhrifum geymslu á samsetningu þess, sem liggja þarf fyrir svo gera megi haldbærar áburðaráætlanir. Rannsókn var gerð á efnainnihaldi hálmbundins taðs og nýtingu þess. Fimmtán sauðfjárog/ eða nautgripabú á Norðausturlandi voru valin til þátttöku í rannsókninni. Sýni voru tekin úr gripahúsum og safnhaugum úti, spurningalisti var lagður fyrir bændur og viðtöl tekin við þá. Að lokinni efnagreiningu, úrvinnslu viðtalsgagna og spurningalista voru upplýsingar nýttar til þess að fá heildstæða mynd af nýtingu þessarar auðlindar. Unnið var út frá fjórum rannsóknarspurningum við gerð þessa verkefnis: · Hvert er efnainnihald hálmbundins taðs? · Á hvernig land er hálmtaðinu dreift á sem búfjáráburði og hvaða tækni er notuð við dreifinguna? · Hversu lengi er hálmtaðið látið brotna niður áður en það er nýtt sem áburður? · Hver er munurinn á efnainnihaldi í hálmbundnu taði og sauðataði? Helstu niðurstöður eru að efnainnihald í hálmbundnu taði reynist vera mjög breytilegt, þó nokkur munur er á milli hústaðs og haugtaðs en minni munur reynist vera á milli geldneytataðs og sauðataðs. Við geymslu í haugum eykst magn flestra næringarefna í taðinu að undanskildu auðleystu köfnunarefni sem tapast. Nær allir bændur nýta hálmbundið tað fyrst og fremst í grænfóðurflög. Við dreifingu taðsins nota margir bændur keðju- eða taðdreifara, þó nokkrir flytja það á sturtuvögnum að flögum og dreifa úr því með ámoksturstækjum véla. Það er breytilegt hversu lengi taðið er látið brotna niður áður en það er nýtt sem áburður. Tæpur helmingur bænda lætur það brotna niður í upp undir átta mánuði, nokkrir í allavega eitt ár en fáir dreifa því beint út í flögin. Við samanburð á efnainnihaldi hálmbundins taðs og sauðataðs án hálms, kemur í ljós að hvorki er mikill munur á þurrefnishlutfalli eða magni megin næringarefnanna þriggja (N, P og K).

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Jónsdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15534
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15534

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Jónsdóttir 1976-. Efnainnihald og nýting á hálmbundnu taði. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15534