Back to search

Agricultural University of Iceland

Áhrif útiveru mjólkurkúa á framleiðsluþætti og vinnutíma í mjaltaþjónafjósum

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknir hérlendis hafa lítið sem ekkert beinst að áhrifum útiveru á framleiðslugetu íslenskra mjólkurkúa. Almenningur hefur í auknum mæli hrópað á meiri dýravelferð og hafa dæmt kúabændur harðlega fyrir að setja kýrnar ekki út. Hérlendis er bundið í lög að nautgripir skuli vera úti að lágmarki 8 vikur á ári. Víða hafa kúabændur með mjaltaþjóna ekki uppfyllt þessa reglugerð og hefur Matvælastofnun kært bændur frá árinu 2009. Markmið þessa verkefnis var að varpa ljósi á áhrif útiveru á framleiðsluþætti mjólkurkúa í mjaltaþjónafjósum hérlendis. Til þess að ná þessu markmiði voru skoðuð áhrif útiveru á nyt, mætingu í mjaltaþjón og kjarnfóðurát. Áhrif á gæði mjólkurinnar voru einnig skoðuð, efnainnihald, frumutala, líftala og frjálsar fitusýrur. Þetta verkefni á einnig að verða grunnur frekari rannsókna á þessu sviði. Niðurstöður verkefnisins voru einkum þær að útivera virðist hafa neikvæð áhrif á nyt og frumutölu mjólkurinnar. Hins vegar virtist efnainnihald ýmist standa í stað eða aukast þó var próteininnihald minna ef skoðaðar eru niðurstöður rannsóknarinnar á Hvanneyri. Útivera virtist hafa jákvæð áhrif á innihald frjálsra fitusýra og engin áhrif sáust á líftölumælingum eða kjarnfóðuráti. Niðurstöður skoðanakönnunar sýndu að bændur eru almennt jákvæðir fyrir útiveru mjólkurkúa en telja það þó auka vinnuálag og kostnað. Bændur telja flestir að kýrnar verði heilsuhraustari á því að komast út. Ljóst er að frekari rannsókna er þörf á sviði atferlisfræðinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigrún Eva Helgadóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15420
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15420

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigrún Eva Helgadóttir 1991-. Áhrif útiveru mjólkurkúa á framleiðsluþætti og vinnutíma í mjaltaþjónafjósum. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15420