Back to search

Agricultural University of Iceland

Húsnæðisstefna og uppbygging lítilla íbúða á höfuðborgarsvæðinu á árunum 2003-2008

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu síðustu áratugi. Sjónum er sérstaklega beint að uppbyggingu lítilla íbúða á tímabilinu 2003-2008 og húsnæðisstefnu yfirvalda á þeim tíma. Leitað er svara við eftirfarandi spurningum: a) Hver voru einkenni húsnæðisstefnu yfirvalda á árunum 2003-2008? b) Vantar litlar íbúðir? Til þess að svara því hver einkenni húsnæðisstefnu yfirvalda voru á árunum 2003-2008 er fjallað um aðkomu yfirvalda á Íslandi að húsnæðismarkaði í gegnum tíðina. Að auki er stuðst við skýrslu samráðshóps um mótun húsnæðisstefnu til að varpa frekara ljósi á tilganginn með húsnæðisstefnu og hvernig henni hefur verið háttað hér á landi. Þá eru borin kennsl á einkenni þeirrar húsnæðisstefnu sem var ríkjandi á tímabilinu 2003-2008. Til að svara því hvort það vanti litlar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu er horft til þeirrar þróunar sem hefur orðið í uppbyggingu íbúða á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum árum. Stuðst er við sérunnin gögn frá Þjóðskrá Íslands þar sem koma m.a. fram upplýsingar um stærð, herbergjafjölda og byggingarár nánast allra íbúða höfuðborgarsvæðisins. Íbúðauppbygging undanfarinna ára er svo sett í samhengi við það umhverfi sem ákvarðanir neytenda á húsnæðismarkaði fara fram í til að meta hvort að það vanti litlar íbúðir. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að húsnæðisstefna yfirvalda á tímabilinu 2003-2008 hafði tvö einkenni; hún fól í sér hvata til að auka við húsnæðisneyslu og hún vann gegn einu meginmarkmiði húsnæðisstefnu sem er að tryggja húsnæðisöryggi og aðstoða viðkvæma hópa við að eignast húsnæði. Svörum við síðari spurningunni, hvort það vanti litlar íbúðir, ber að taka með ákveðnum fyrirvara þar sem eftirspurn eftir litlum íbúðum var ekki mæld sérstaklega. En niðurstöðurnar benda þó til þess að það vanti litlar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu ef tekið er tillit til þess umhverfis sem húsnæðisákvarðanir fara fram í dag og að litlum íbúðum hefur fækkað hlutfallslega miðað við fólksfjölda á undanförnum árum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Egill Þórarinsson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13311
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13311

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Egill Þórarinsson 1983-. Húsnæðisstefna og uppbygging lítilla íbúða á höfuðborgarsvæðinu á árunum 2003-2008. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13311