Back to search

Agricultural University of Iceland

Útikennsla á Hvanneyri : ávinningur fyrir skólastigin þrjú

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð fjallar um möguleika á Hvanneyri til útináms á mismunandi skólastigum. Hvanneyrarstaður er skólaþorp þar sem nemendur blómstra í leikskóla, grunnskóla og háskóla. Markmið ritgerðarinnar er að koma auga á svæði jarðarinnar sem henta til útináms og ávinning samfélagsins á Hvanneyri af því að gera útinám sýnilegt. Í upphafi var útinám skólanna þriggja á Hvanneyri skoðað; leikskólans, grunnskólans og háskólans. Höfundur kannaði frekar ítarlega hvað felst í hugtakinu útikennsla og skoðaði íslenska og erlenda hugmyndafræði fyrir hugtakið. Ýmsir sáttmálar sem Ísland á aðild að voru skoðaðir í því samhengi hvernig skólarnir geta framfylgt þeim stefnum betur með reglubundinni útikennslu. Því næst voru náttúrufarslegar forsendur kannaðar og landslagsgreiningar framkvæmdar á athugunarsvæðinu. Höfundur valdi þá leið að skipta greiningunni í þrjá megin hluta, náttúrufar, menningu og upplifun. Í ljósi þessara greininga, upplifunar höfundar af svæðinu ásamt rituðum heimildum og ekki síst viðtölum við stjórnendur, kennara og heimamenn, voru niðurstöður ritgerðarinnar fengnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Kristín Hermannsdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13304
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13304

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Kristín Hermannsdóttir 1980-. Útikennsla á Hvanneyri : ávinningur fyrir skólastigin þrjú. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13304