Back to search

Agricultural University of Iceland

Vistvænt skipulag - friðland fugla

Abstract

dc:description.abstract

Fuglafriðlandið í Vatnsmýrinni er einstakt náttúrusvæði í miðborg Reykjavíkur og gegnir mikilvægu hlutverki fyrir Tjörnina, bæði sem vatnsmiðlunarsvæði og fyrir lífríki og tegundafjölbreytni. Að auki getur fuglafriðlandið skapað mikilvægan sess í huga borgarbúa. Ef horft er til fuglafriðlandsins og Norræna hússins með áherslu á upplifun, fræðslu og skemmtun eru miklir möguleikar í boði á svæðinu. Markmið verkefnisins er að leggja fram skipulagtillögu af svæðinu í anda sjálfbærrar þróunar. Í þessum hluta verkefnisins er áhersla lögð á að kynna skipulagið út frá einum þætti sjálfbærrar þróunar, þ.e. samfélagi. Fjallað er um hvernig hægt er að skapa aðstæður á svæðinu fyrir fólk til fræðslu og menntunar án þess að rýra svæði fuglanna. Auk þess að leggja fram skipulagstillögu um betri tengingu fuglafriðlandsins við miðbæ Reykjavíkur. Kynntar verða fyrri rannsóknir sem nýttust við þetta verkefni og má þá helst nefna greiningar sem voru mikilvægur þáttur í undirbúningsvinnu fyrir skipulagstillöguna. Skoðað var hvað svæðið hefur upp á að bjóða, hvað má laga og hvaða möguleikar eru í boði. Að því loknu var skipulagstillaga af svæðinu lögð fram með áherslu á betri tengingu fyrir gangandi vegfarendur undir Hringbrautina. Jaðar fuglafriðlandsins verður gerður að fræðslu og leiksvæði, þar sem meðal annars verður hægt að fræðast um eiginleika votlendis og fuglalífið á svæðinu. Mun þetta skila þjóðhagslegum ábata út í samfélagið, annars vegar með aukinni þekkingu almennings og hins vegar með aukinni þjónustu í Norræna húsinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13246
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13246

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Sólveig Helga Jóhannsdóttir 1982-. Vistvænt skipulag - friðland fugla. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13246