Back to search

Agricultural University of Iceland

Er hægt að nota aðgengileg íslensk landupplýsingagögn til að áætla viðkvæmni landslags fyrir traðki ferðamanna á Þingvöllum?

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð fjallar um hvort og hvernig hægt er að nota aðgengileg íslensk landupplýsingagögn til að áætla viðkvæmni landslags fyrir traðki ferðamanna á Þingvöllum. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum var valinn vegna þess að fullunnið gróðurfarskort frá Náttúrufræðistofnun Íslands er til af því svæði. Því lá fyrir að nota það og byggja á til þess að fá niðurstöðu í verkefnið. Mörg gögn voru skoðuð í mismunandi gæðum og mælikvörðum t.d. Nytjalandsflokkun frá LbhÍ, Jarðvegskort frá 2009 frá LbhÍ, IS50V gagnagrunnurinn frá Landmælingum Íslands, Corine þekja frá Landmælingum Íslands, Rofkort LbhÍ frá árinu 1997 og Vistgerðakort frá Náttúrufræðistofnun Íslands. Unnið var í ArcGis forritinu, flokkuð niður þau gögn sem hentuðu og gögnum gefið mismunandi vægi frá 1 – 9 miðað við viðkvæmni. Sú aðferðafræði sem notuð var yfirlagnargreining e. Overlay Analysis, gengur út á að mismunandi gögn eru lögð ofan á hvort annað, þar sem hver gögn hafa mismunandi vægi. Forritið reiknar út heildarniðurstöður gagna og býr til kort með lokaniðurstöðum verkefnisins. Niðurstöður voru sannreyndar með sjónrænni greiningu á loftmyndum og vettvangsferð um svæðið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Steinn Jóhann Randversson 1980-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13244
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13244

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steinn Jóhann Randversson 1980-. Er hægt að nota aðgengileg íslensk landupplýsingagögn til að áætla viðkvæmni landslags fyrir traðki ferðamanna á Þingvöllum?. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13244