Back to search

Agricultural University of Iceland

Miðbærinn á Egilsstöðum - Vettvangur iðandi mannlífs. Hönnunartillaga

Abstract

dc:description.abstract

Markmiðið með þessu verkefni er þríþætt: Að athuga með hvaða hætti má nýta þann strúktúr sem fyrir er í miðbæ Egilsstaða til að byggja upp líflegan miðbæ sem tekur tillit til anda staðar og rýmismyndunar. Að athuga hverjir eru styrkleikar og veikleikar strúktúrs miðbæjarins á Egilsstöðum. Að skoða hverjir eru mikilvægustu þættir í miðbænum með tilliti til anda staðar. Farið er yfir fordæmi þar sem unnið er með þjóðveg inn í þéttbýli. Einnig var fræðilegt efni um mikilvægi almenningsrýma skoðað. Unnið var að hönnunartillögu sem felur í sér þéttingu byggðar og bætir aðgengi gangandi- og hjólandi vegfarenda. Greiningar voru gerðar á svæðinu og hönnunarforsendur unnar út frá þeim. Þar var helst skoðað hver er strúktúr og starfsemi húsanna, stærð þess svæðis sem fer undir umferðarmannvirki, veðurfar og gildandi skipulagsáætlanir. Við hönnun á tillögunni var sérstaklega unnið með rýmið sem myndast á milli húsanna með tilliti til mannlegs skala. Götutrjám er bætt inn á svæðið og íbúðum fjölgað.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Perla Sigurðardóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13243
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13243

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Perla Sigurðardóttir 1985-. Miðbærinn á Egilsstöðum - Vettvangur iðandi mannlífs. Hönnunartillaga. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13243