Back to search

Agricultural University of Iceland

Brákarey í Borgarnesi - Tillaga að breyttu skipulagi

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu verkefni er fjallað um Brákarey í Borgarnesi. Þar var áður starfrækt fiskiútgerð, sláturhús og ýmislegt fleira en í dag hefur nánast öll starfssemi í eyjunni lagst af og eftir standa mannlaus húsin. Megin markmiðið með þessu verkefni er að, skoða með hvaða hætti mætti gefa stað, sem í tímanna rás hefur glatað tilgangi sínum, nýtt hlutverk og gæða hann lífi að nýju, þar sem andi staðar og náttúruleg umgjörð fá að njóta sín til fulls. Til að ná þessu markmiði voru settar fram eftirfarandi spurningar: Hvað er það sem gæðir stað lífi? Í hverju liggja tækifæri og ógnanir í Brákarey og hvernig má nota náttúrulega umgjörð Brákareyjar til að skapa spennandi og líflegan stað? Til að leita svara við þessum spurningum var farið í vettvangsferðir og svæðið kortlagt, lesnar bækur um sögu eyjunnar og efni og kenningar sem fjalla um hvað er mikilvægt þegar skapa á líflegan stað skoðaðar. Mikil áhersla er lögð á að greina einkenni svæðisins og skilgreina þann staðaranda sem þar ríkir og kortleggja hvaða þættir eru mikilvægir til að halda í karaktereinkenni svæðisins. Í hönnunartilllögunni er unnið útfrá þessum greiningum. Reynt er eftir fremsta megni að halda í anda staðarins. Gert er ráð fyrir að ný,blönduð og nokkuð þétt byggð rísi í Brákarey í góðu samræmi við þá sem fyrir er. Mikil áhersla er lögð á grænar samgöngur (gangandi og hjólandi). Leitast er við að gera svæðið spennandi, öruggt, þægilegt og síðast en ekki síst ánægjulegt, bæði fyrir heimamenn og ferðalanga. Greiningarvinna og hönnunartillaga er sett fram í kortum og myndum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • María Lísbet Ólafsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13239
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13239

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

María Lísbet Ólafsdóttir 1986-. Brákarey í Borgarnesi - Tillaga að breyttu skipulagi. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13239