Back to search

Agricultural University of Iceland

Lakagígar 2030

Abstract

dc:description.abstract

Með fjölgun ferðamanna á Íslandi og bættum vegsamgöngum að Lakagígum mun aðsókn ferðamanna og álag á svæðinu aukast. Svæðið, sem er í Vatnajökulsþjóðgarði, er viðkvæmt fyrir álagi, hvort sem er vegna gróðurfars, jarðvegs, berggrunns eða jarðmyndana. Ekki verður hjá því komist að ferðamenn hafi áhrif á umhverfi ferðamannastaða en mikilvægt er að lágmarka þau áhrif. Finna þarf ásættanleg mörk milli markmiða verndunar og markmiða varðandi aðgengi og upplifun ferðamanna. Markmið þessa verkefnis er að finna leiðir til að mæta aukinni aðsókn ferðamanna að Lakagígum án þess að óásættanlegar breytingar verði á náttúrunni og að svæðið standist áfram væntingar ferðamanna. Hægt væri að skipta svæðinu upp í þrjú mismunandi stjórnunarsvæði: ósnert víðerni, svæði með takmarkaðri uppbyggingu og þjónustusvæði með tilheyrandi aðstöðu. Til lengri tíma litið yrði svæðinu fyrir bestu að lokað yrði fyrir almennri umferð á hringvegi Lakagíga (F207) og hafðar skipulagðar áætlunarferðir, jafnvel með leiðsögn. Með tilliti til mikillar fjölgunar ferðamanna á svæðinu er það besta lausnin til að samþætta verndun náttúrunnar og upplifun ferðamanna. Sú lausn fellur ennfremur vel að markmiðum Vatnajökulsþjóðgarðs. Einnig þarf að byggja upp innviði til að hækka þolmörk og vernda gjall og gróður. Þróa þarf vöktunaráætlun til að meta hvar og hvenær þolmörkum er náð og grípa þarf til aðgerða. Efla þarf upplýsingagjöf með því að fjölga landvörðum og upplýsingaskiltum, en með skipulögðum ferðum um svæðið væri betur hægt að auka náttúrutúlkun og fræðslu til ferðamanna þar sem leiðsögumaður myndi fylgja hverjum hóp.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Lucie Andreé Káradóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13237
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13237

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Lucie Andreé Káradóttir 1986-. Lakagígar 2030. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13237