Back to search

Agricultural University of Iceland

Klaufsjúkdómar hjá mjólkurkúm á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Klaufsjúkdómar eru algengir í mjólkurkúm erlendis og ásamt því að valda minnkun á velferð kúa eru þeir sumstaðar taldir vera þriðja kostnaðarsamasta heilbrigðisvandamálið í mjólkurkúm á eftir júgurbólgu og frjósemisvandamálum. Klaufsjúkdómar hafa aldrei verið rannsakaðir hér á landi í íslensku mjólkurkúnni en þekkt er að um 8% íslenskra kúa þjást af helti. Allt að því 90% tilfella helti stafar af klaufsjúkdómum. Markmið þessa verkefnis er að kanna tíðni og greina klaufsjúkdóma í íslensku mjólkurkúnni og reyna að ráða í þá þætti sem áhrif hafa á tíðni þeirra. Farið var með klaufskurðarmönnum í 9 fjós á Suðurlandi og 1 á Vesturlandi og klaufir skoðaðar á 445 kúm. Ýmsir aðbúnaðar- og fóðrunarþættir voru skráðir í hverju fjósi og einstaklingsmerki hverrar kýr skráð til þess að fá upplýsingar um fjölda daga frá síðasta burði og númer mjaltaskeiðs. Niðurstöður þessa verkefnis eru þær að einkenni klaufsjúkdóma sjást í klaufum um 77,5% kúa af þeim 445 kúm sem skoðaðar voru. Horneyðing sást í klaufum 50,1% kúa, vefskemmdir í hvítu línunni í klaufum 17,5% kúa, ofvaxnar klaufir á 17,5% kúa, snúnar klaufir á 5,6% kúa, tvöfaldur botn í klaufum 12,1% kúa, mar í klaufum 19,6% kúa og sár í klaufum 1,3% kúa. Þeir aðbúnaðarþættir sem höfðu marktæk áhrif á tíðni einkenna klaufsjúkdóma voru: Tegund fjóss, hreinleiki ganga, gerð ganga, gerð hreinsunarbúnaðar og grip yfirborðs ganga. Þeir fóðrunarþættir sem höfðu marktæk áhrif voru: Fjöldi daga fyrir burð sem byrjað er að gefa kjarnfóður, magn kjarnfóðurs gefið um burð og magn kjarnfóðurs gefið við 30 kg nyt. Einnig hafði fjöldi mjaltaskeiða og fjöldi daga frá síðasta burði marktæk áhrif á tíðni einkenna. Miðað við þau áhrif sem áðurnefndir þættir virðast hafa á klaufsjúkdóma, er margt hægt að gera til að bæta klaufheilsu mjólkurkúa á Íslandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Tryggvi Höskuldsson 1988-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12448
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12448

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Tryggvi Höskuldsson 1988-. Klaufsjúkdómar hjá mjólkurkúm á Íslandi. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12448