Back to search

Agricultural University of Iceland

Viðhorf íslenskra neytenda til landbúnaðarafurða - Áhrifaþættir á kjötneyslu

Abstract

dc:description.abstract

Eftirspurn eftir kjöti á íslenskum búvörumörkuðum hefur breyst þó nokkuð á síðustu árum og áratugum. Óskir neytenda skipta nú sífellt meira máli og neytendur eru þannig farnir að hafa töluverð áhrif á hvernig bændur haga framleiðslu sinni. Í þessu verkefni er lagt mat á kjötneyslu Íslendinga í dag auk þess sem fjallað er um helstu áhrifaþætti kauphegðunar. Spurningakönnun var lögð fyrir handahófskennt úrtak neytenda og rannsóknin byggir á niðurstöðum hennar. Í ljós kom að kjúklingur er vinsælasta kjöttegundin í dag, sérstaklega meðal þéttbýlisbúa en lambakjötið viðheldur stöðu sinni sem vinsælasta kjötið meðal dreifbýlisbúa. Áhrifaþættir eftirspurnar eru mismikilvægir eftir kjöttegundum, til dæmis þykir neytendum almennt mikilvægara að lambakjöt sé íslenskt að uppruna en að kjúklingur sé það. Góð gæði kjötsins eru þó mikilvægust, sama um hvaða kjöttegund ræðir, að mati neytenda. Nokkuð stór hluti svarenda í könnun verkefnisins segir að væri það í boði myndu þeir frekar kaupa erlent kjöt en íslenskt og nefnir þá helst lægra verð sem ástæðu. Þó er meirihluti sem segist frekar vilja kaupa íslenskt kjöt og er jafnframt tilbúinn að borga hærra verð fyrir það. Afgerandi meirihluti neytenda telur að góður aðbúnaður húsdýra skipti máli við framleiðslu á kjöti og væri tilbúinn að borga hærra verð fyrir kjötvörur sem bæru vottun þess að hafa verið framleiddar við samþykktar aðstæður um aðbúnað og velferð dýra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Snædís Anna Þórhallsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12447
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12447

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Snædís Anna Þórhallsdóttir 1987-. Viðhorf íslenskra neytenda til landbúnaðarafurða - Áhrifaþættir á kjötneyslu. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12447