Agricultural University of Iceland
Erfðafjölbreytileiki í móðurlínu íslenskra nautgripa metinn með raðgreiningu á hvatberaerfðamengi
Abstract
dc:description.abstractErfðafjölbreytileiki er stofnum nauðsynlegur til að þeir geti lagað sig að breytingum í umhverfi, aðlagast breyttum áherslum í ræktun eða öðrum hugsanlegum breytingum í framtíðinni. Á undanförnum árum hefur staðbundnum nautgripastofnum víða verið skipt út fyrir þaulræktaða framleiðslustofna sem farið hafa í gegnum strangt úrval og við það tapað niður erfðafjölbreytileika. Íslenski nautgripastofninn er talinn hafa verið einangraður frá öðrum kynjum í yfir 1000 ár og telst samkvæmt því lokaður erfðahópur. Í þessari rannsókn var erfðafjölbreytileiki innan íslenska stofnsins metinn með raðgreiningu á D-lykkju hvatberaerfðamengis í sýnum frá 35 bæjum víðsvegar af landinu. Markmiðið með greiningu erfðafjölbreytileika innan íslenska stofnsins var að leiða í ljós stöðu stofnsins í samanburði við erlenda stofna og greina hugsanlegan skyldleika þeirra á milli. Niðurstöður sýndu að þónokkur erfðafjölbreytileiki er til staðar í íslenska stofninum á meðan framleiðslustofnar sem og mjög litlir staðbundnir stofnar búa yfir takmörkuðum breytileika. Einnig kom í ljós að af samanburðar stofnunum er íslenski stofninn er skyldastur færeyska nautgripa kyninu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Lilja Rún Bjarnadóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/12444
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/12444