Agricultural University of Iceland
Mat á svipfars- og erfðaþáttum fyrir eiginleikann "hæð"
Abstract
dc:description.abstractÁ síðastliðnum áratug hefur áhugi bænda á því að rækta háfættari kýr aukist verulega. Árið 2009 var eiginleikinn „hæð“ felldur inn í línulega einkunnaskalann hér á landi. Ekkert hefur verið unnið úr þeim upplýsingum sem safnast hafa á síðustu 3 árum fyrr en nú. Í þessari rannsókn voru erfðastuðlar fyrir eiginleikann metnir, tíðnidreifing hans könnuð, áhrif ytri þátta skoðuð og samhengi hans við hæðarmælingar sem gerðar voru rannsakað. Vonast er til að niðurstöður rannsóknar nýtist í skipulögðu ræktunarstarfi nautgriparæktarinnar. Við mat á erfðastuðlum voru gerðar greiningar með línulegum einbreytu- og tvíbreytueinstaklingslíkönum og (sam)dreifnistuðlar metnir með AI-algrími fyrir aðferð hámarkslíkinda. Önnur úrvinnsla gagna var gerð með tölfræðiforritinu SAS og Excel. Niðurstöður sýndu fram á hátt arfgengi eiginleikans „hæð“ og meðalsterka erfðafylgni við júgurdýpt. Samhengi metinnar hæðar og mælinganna voru breytilegar en hæst samhengi var á milli metinnar hæðar og hæðar á mjaðmarhorn og veikast samhengi við legglengd. Út frá þessu má velta fyrir sér hvort að endurskoða þurfi skilgreiningu eiginleikans hæð til að hann nýtist sem best í skipulegu ræktunarstarfi. En annars ætti að reynast auðvelt að velja fyrir og bæta júgurdýpt samhliða því.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hulda Jónsdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/12441
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/12441