Back to search

Agricultural University of Iceland

Mat á erfðastuðlum fyrir flæðihraða mjólkur við mjaltir í íslenska kúastofninum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að komast að hvað flæðihraði mjólkur við mjaltir hjá íslenskum mjólkurkúm er, hver breytileiki mjaltaeiginleikans er, arfgengi hans og athuga hvort hægt er að nota upplýsingar úr mjaltakerfunum sem beinar mælingar inn í kynbótamatið. Erfðafylgni á milli eiginleikanna málnyt,mjaltatími, hámarksflæði og meðalflæði er einnig skoðuð.Gagnasöfnun hófst vorið 2005 og henni lauk sumarið 2006. Notuð voru gögn frá 49 búum með tölvustýrð mjaltakerfi frá framleiðendunum DeLaval® og SAC®. Frá bæjunum var safnað upplýsingum um kýrnúmer, skýrsluhaldsnúmer á bænum, nyt við síðustu mjaltir, hámarkshraða kg/mín, meðalhraða kg/mín, mjaltatíma mín:sek, hvort upplýsingarnar voru frá kvöld- eða morgunmjöltum og svo dagsetningu á mjöltunum. Upplýsingar um burði og ætterni kúnna fengust frá Bændasamtökum Íslands. Í gagnasafni eru 3.630 mælingar frá mjaltabásabæjum, en 111 mælingar voru frá kúm með ófullnægjandi ætternisupplýsingar eða burðarupplýsingar, byggist gagnasafnið því á 3.519 mælingum. Sumar kýr eru með tvær og þrjár mælingar, alls eru 2.368 kýr í gagnasafninu. Í því eru 1.307 mælingar fyrsta kálfs kvígna, 938 mælingar frá kúm sem hafa borið tvisvar, 552 frá kúm sem hafa borið þrisvar og 722 sem borið hafa oftar, þar af 7 mælingar frá kúm sem borið hafa níu sinnum. Mesti hámarksflæðihraðinn var 6,8 kg/mín en lægsti var 0,7 kg/mín, meðaltal hámarksflæðis var 2,73 kg/mín og staðalfrávik þess 0,9 kg/mín. Hæsta meðalflæði var 4,9 kg/mín og lægsta var 0,2 kg/mín, meðaltal þessa eiginleika var 1,74 kg/mín og staðalfrávikið 0,62 kg/mín. Lengsti mjaltatími var 26 mínútur og 18 sekúndur, sá stysti var 49 sekúndur og að jafnaði voru kýrnar 5 mínútur og 42 sekúndur í mjöltum og staðalfrávikið 2,42 mínútur. Það er því ljóst að breytileiki í mjaltaeiginleikum er mjög mikill. Erfðastuðlar voru metnir með aðferð sennilegustu frávika, REML (Restricted Maximum Likelihood), á grunni fjölbreytugreiningar (General Mixed Model) Arfgengi á hámarksflæði reyndist vera 0,44 ±0,06, á meðalflæði var það 0,36 ±0,05 og 0,30 ±0,05 á mjaltatímanum. Erfðafylgni milli meðalflæðis og hámarksflæðis var 0,99 ±0,01. Þrátt fyrir að gögnin væru einungis frá 49 búum töldu dætrahópar undan þeim nautum sem voru að koma til afkvæmadóms um þær mundir er gögnum var safnað,á bilinu 10-20 einstaklinga. Það er því ljóst að með því að nota gögn frá öllum búum með tölvustýrð mjaltakerfi er auðvelt að fá viðunandi stærð á dætrahópum, verði tekin ákvörðun um að nota þessi gögn til kynbóta á mjaltaeiginleikum íslensku kúnna. Þar er ekki eftir neinu að bíða að koma hámarksflæði inn í ræktunarmarkmiðið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elin Nolsøe Grethardsdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10858
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10858

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elin Nolsøe Grethardsdóttir 1980-. Mat á erfðastuðlum fyrir flæðihraða mjólkur við mjaltir í íslenska kúastofninum. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10858