Abstract
dc:description.abstractTilgangur rannsóknarinnar var að finna hagkvæma leið til að halda undirlagi undir hrossum þurru yfir innistöðutíma að vetrarlagi. Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka áhrif gólfhita í hrossastíum á þurrefni stíumottunnar, ásamt því að kanna hitastig í upphituðum stíum annars vegar og óupphituðum stíum hins vegar. Þá var reynt með rannsókninni að fá einhverja mynd af mun á rekstrarkostnaði upphitaðra og óupphitaðra stía. Rannsóknin fór fram í nýju hesthúsi á Hvanneyri og var annar helmingur hússins upphitaður með hveravatni en hinn helmingurinn var óupphitaður. Rannsóknin fór fram í tveimur lotum, vor og haust 2007. Að vori var reynt að finna út hversu mikið stíur þornuðu með því að setja sama magn af spæni í báða helminga tilraunarinnar og kanna þurrefnis- og hitamun á milli upphitaðra og óupphitaðra stía. Að hausti var hins vegar kannað hversu mikill spænir sparaðist við upphitun þegar spænisnotkun er ákveðin með sjónmati, en hirðingamaður hesthússins setti spæni í báða helminga eftir því sem honum fannst þurfa miðað við hversu þurrt yfirborð stíunnar leit út fyrir að vera. Sýni úr stíumottu voru tekin á þriggja daga fresti að vori en á vikufresti að hausti og þurrefni og hiti í undir- og yfirborði mottu voru mæld í báðum hlutum rannsóknarinnar, ásamt spænismagni, vatnssulli hrossa og tíma úti að hausti. Niðurstöður sýndu að gólfhiti leiðir til þurrari stíumottu og jafnframt að hiti ofan á og innan í stíumottu er meiri í upphituðum stíum en óupphituðum stíum. Um helmingi minni spænir fór í upphitaðar en óupphitaðar stíur í hausthluta. Óupphitaðar stíur í hausthluta rannsóknar urðu þurrari eftir því sem leið á tímabilið ásamt því að spænisnotkun minnkaði, sem bendir til að einhver þróun í stíumottunni leiði til þess að hún þorni upp.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigríður Ólafsdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10849
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10849